Fyrirliði Þróttar frá næstu vikurnar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 11. ágúst 2022 22:31 Álfhildur Rósa Kjartansdóttir sárkvalin. Vísir/Hulda Margrét Álfhildur Rósa Kjartansdóttir verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla sem hún varð fyrir í 3-0 sigri Þróttar Reykjavíkur á Selfossi í síðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta. Þetta staðfesti Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, í viðtali við Fótbolti.net. Þar segir að hann sem betur fer sé Álfhildur Rósa ekki brotin en það sé ljóst að hún verði frá í nokkurn tíma. Nik var vægast sagt ósáttur með dómgæsluna í leiknum og lét gamminn geisa eftir leik. „Ég vona að dómararnir fari að vernda leikmenn betur í framhaldinu því leikmenn hafa verið að meiðast því verndin á leikmönnum hefur verið hræðileg og hún var aftur hræðileg í kvöld. Það hefur verið allt of lítið spjaldað í allt sumar, dómarar eru einfaldlega ekki að passa upp á leikmenn,“ sagði Nik skömmu eftir leik og hélt svo áfram: „Okkur er sama þótt leikurinn sé líkamlega harður en það eru litlu atriðin. Það er svo mikið verið að ýta í bakið þegar boltinn er farinn og það er hættulegt því þú getur óvart ýtt þeim of langt í stöður sem þeir eru ekki í stjórn. Þetta sést á hæsta stigi fótboltans að allar hrindingar í bakið eru bannaðar, en að einhverjum ástæðum þá er þetta leyfilegt í Bestu deild kvenna.“ Ásmundur Þór Sveinsson dæmdi leikinn.Vísir/Hulda Margrét Það er ljóst að um mikið áfall er að ræða fyrir bæði Álfhildi Rósu sem og Þrótt. Liðið er nú þegar án Jelenu Tinnu Kujundzic en hún meiddist gegn Breiðabliki þann 14. júní síðastliðinn og er ekki enn snúin til baka. Þróttur er í harðri baráttu við Stjörnuna og ÍBV um 3. sæti Bestu deildarinnar en liðið er sem stendur í 4. sæti með 22 stig, tveimur stigum minna en Stjarnan sem situr í 3. sæti með 24 stig eftir að hafa leikið leik meira. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Þetta staðfesti Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, í viðtali við Fótbolti.net. Þar segir að hann sem betur fer sé Álfhildur Rósa ekki brotin en það sé ljóst að hún verði frá í nokkurn tíma. Nik var vægast sagt ósáttur með dómgæsluna í leiknum og lét gamminn geisa eftir leik. „Ég vona að dómararnir fari að vernda leikmenn betur í framhaldinu því leikmenn hafa verið að meiðast því verndin á leikmönnum hefur verið hræðileg og hún var aftur hræðileg í kvöld. Það hefur verið allt of lítið spjaldað í allt sumar, dómarar eru einfaldlega ekki að passa upp á leikmenn,“ sagði Nik skömmu eftir leik og hélt svo áfram: „Okkur er sama þótt leikurinn sé líkamlega harður en það eru litlu atriðin. Það er svo mikið verið að ýta í bakið þegar boltinn er farinn og það er hættulegt því þú getur óvart ýtt þeim of langt í stöður sem þeir eru ekki í stjórn. Þetta sést á hæsta stigi fótboltans að allar hrindingar í bakið eru bannaðar, en að einhverjum ástæðum þá er þetta leyfilegt í Bestu deild kvenna.“ Ásmundur Þór Sveinsson dæmdi leikinn.Vísir/Hulda Margrét Það er ljóst að um mikið áfall er að ræða fyrir bæði Álfhildi Rósu sem og Þrótt. Liðið er nú þegar án Jelenu Tinnu Kujundzic en hún meiddist gegn Breiðabliki þann 14. júní síðastliðinn og er ekki enn snúin til baka. Þróttur er í harðri baráttu við Stjörnuna og ÍBV um 3. sæti Bestu deildarinnar en liðið er sem stendur í 4. sæti með 22 stig, tveimur stigum minna en Stjarnan sem situr í 3. sæti með 24 stig eftir að hafa leikið leik meira. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Fótbolti Íslenski boltinn Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira