Sport

Fallon Sherrock heldur áfram að skrifa söguna: „Ég er að verða vön þessu“

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Fallon Sherrock heldur áfram að skrifa pílusöguna.
Fallon Sherrock heldur áfram að skrifa pílusöguna. NESImages/DeFodi Images via Getty Images

Fallon Sherrock skrifaði enn einn kaflann í pílusöguna í gær þegar hún varð sú fyrsta til að vinna kvennakeppnina á Betfred World Matchplay í pílukasti.

Þetta var i fyrsta skipti í sögunni sem keppt var í kvennaflokki á þessu virta móti, en Sherrock hafði betur gegn hinni Hollensku Aileen de Graaf í úrslitum, 6-3.

Þetta var einnig í fyrsta skipti sem kvennamót á vegum PDC er sjónvarpað.

Með sigrinum vann Sherrock sér inn rúmlega eina og hálfa milljón króna. Sigurinn gefur henni einnig þátttökurétt á Grand Slam of Darts sem fram fer í nóvember.

„Ég held að ég sé að verða vön þessu, að skrifa söguna,“ sagði Sherrock í léttum tón eftir sigurinn.

„Þetta er frábær tilfinning og klárlega stærsti titillinn sem ég hef unnið á ævinni. Ég hef alltaf haft trú á mér og ég get sagt að pressan á mér hafi verið þess virði. Nú get ég sagst hafa unnið pressuna.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×