Judy Huth, sem nú er 64 ára gömul, stefndi Cosby vegna kynferðisofbeldis sem hún sakaði hann um að hafa beitt sig þegar hún var sextán ára gömul. Cosby neitaði sök þrátt fyrir að hann viðurkenndi að hafa hitt Huth og vinkonu hennar úr framhaldsskóla og tekið þær með sér á Playboy-setrið árið 1975. Í málinu voru meðal annars lagðar fram myndir sem vinkonan tók af Cosby og Huth á setrinu.
Kviðdómendur komust að þeirri niðurstöðu að Cosby hefði vísvitandi valdið Huth skaða með kynferðislegu samneyti, honum hefði mátt vera ljóst að hún væri yngri en átján ára gömul og að framferði hans hafi verið knúið af ónáttúrulegri eða óeðlilegri kynferðislegri löngun í barn, að sögn AP-fréttastofunnar.
Huth var dæmd hálf milljón dollara, jafnvirði rúmra 66 milljóna íslenskra króna, en engar refsibætur. Hún sagði það skipta hana meira máli að kviðdómendurnir hefðu trúað henni en að vera úrskurðaðar fúlgur fjár.
„Þetta hefur verið pynting. Að vera rifin í sundur, hent undir rútuna og bakkað yfir mann. Fyrir mér er þetta svo stór sigur,“ sagði Huth en mál hennar hefur tekið um sjö ár.
Cosby bar ekki vitni og var ekki viðstaddur réttarhöldinn. Hann er nú 84 ára gamall. Áfrýjunardómstóll ógilti fangelsisdóm sem hann hlaut fyrir að byrla konu ólyfjan og nauðga henni í fyrra og var hann látinn laus úr fangelsi.
Fjöldi kvenna hefur sakað Cosby um kynferðisofbeldi en mál Huth var eitt það síðasta sem kemur til kasta dómstóla. Tryggingafyrirtæki Cosby gerði sátt í fjölda annarra mála.