Golf

Koepka að ganga til liðs við LIV eftir að hafa sakað Mickelson um græðgi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Brooks Koepka verður líklega næsta stórstjarnan í golfi til að ganga til liðs við LIV-mótaröðina.
Brooks Koepka verður líklega næsta stórstjarnan í golfi til að ganga til liðs við LIV-mótaröðina. David Cannon/Getty Images

Kylfingurinn Brooks Koepka er að öllum líkindum að segja skilið við PGA-mótaröðina í golfi og ganga til liðs við hina umdeildu sádí-arabísku LIV-mótaröð, aðeins nokkrum mánuðum eftir að hann sakaði Phil Mickelson um græðgi fyrir að gera slíkt hið sama.

Sky Sports er meðal þeirra miðla sem greina frá þessu, en samkvæmt þeirra heimildamönnum mun Koepka taka þátt í öðru móti LIV-mótaraðarinnar sem fer fram í næstu viku. Koepka hefur fjarlægt öll tengsl sín við PGA-mótaröðina af samfélagsmiðlum sínum.

Koepka var spurður út í það hvort hann ætlaði sér að stökkva frá borði og ganga til lið við LIV-mótaröðina áður en Opna bandaríska meistaramótið fór fram um seinustu helgi, en þá virtist kylfingurinn vera kominn með nóg af þess háttar spurningum.

„Ég skil þetta ekki. Ég er að reyna að einbeita mér að Opna bandaríska, maður. Ég skil þetta í alvörunni ekki. Ég er orðinn þreyttur á því að eiga þetta samtal,“ sagði Koepka.

„Ég er orðinn þreyttur á þessu öllu. Eins og ég hef sagt þá finnst mér þið vera að varpa skugga á Opna bandaríska meistaramótið og mér finnst það ömurlegt.“

„Veit ekki hvort ég myndi nota orðið græðgi ef ég væri Phil“

Þrátt fyrir þessi ummæli Koepka virðist þessi 32 ára kylfingur nú vera að ganga til liðs við LIV-mótaröðina. Hann verður því nýjasta stóra nafnið til að skipta um lið og fylgir í fótspor kylfinga á borð við Dustin Johnson, Bryson DeChambeau og Phil Mickelson.

Koepka hefur þó greinilega ekki alltaf verið fylgjandi LIV-mótaröðinni. Daily Mail rifjaði upp ummæla hans frá því í febrúar á þessu ári þegar hann skaut hann föstum skotum á Phil Mickelson, sem þá var við það að ganga til liðs við LIV.

Mickelson gagnrýndi þá PGA-mótaröðina og sagði fyrirtæki tengd henni rukka sig fyrir að nota myndbönd af hans eigin golfhöggum.

„Þeir [PGA-mótaröðin] rukka fyrirtæki fyrir að nota högg sem ég hef slegið. Og þegar ég var í „The Match“ - í fimm skipti - þá þvingaði mótaröðin mig til að borga sér eina milljón dollara í hvert skipti fyrir sig. Fyrir fjölmiðlarétt á mínu eigin efni. Svoleiðis græðgi er að mínu mati meira en fáránleg,“ sagði Mickelson.

Þessi orð Mickelson birtust svo á Instagram og þar lét Koepka til skara skríða.

„Ég veit ekki hvort ég myndi nota orðið græðgi ef ég væri Phil,“ skrifaði Koepka við færsluna.


Tengdar fréttir

Liðhlauparnir mæta til leiks á US Open

Opna bandaríska meistaramótið, US Open, hefst á Brookline-vellinum í Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum í dag. Margir af bestu kylfingum heims mæta til leiks, þar á meðal kylfingar af LIV-mótaröðinni. Bein útsending frá mótinu hefst klukkan 15:00 á Stöð 2 Golf.

Eru Sádar að eyðileggja golfið?

Þó að Sádi-Aröbum hafi ekki tekist að lokka Tiger Woods yfir á hina nýju LIV-mótaröð í golfi, alla vega ekki enn, stendur golfheimurinn nú klofinn eftir að stór hópur kylfinga úr fremstu röð hefur þegið þær himinháu fjárhæðir sem þar eru í boði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×