Golf

Vann sitt fyrsta risa­mót eftir æsi­spennandi loka­sprett á Opna banda­ríska

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Matthew Fitzpatrick kom, sá og sigraði um helgina.
Matthew Fitzpatrick kom, sá og sigraði um helgina. David Cannon/Getty Images

Englendingurinn Matt Fitzpatrick vann Opna bandaríska meistaramótið í golfi sem fram fór um helgina. Hinn 27 ára gamli Fitzpatrick hafði betur eftir hörkukeppni við Scottie Scheffler, efsta kylfing heimslistans, og Will Zalatoris. Aðeins munaði einu höggi á kylfingunum.

Opna bandaríska meistaramótið fór fram í 122. sinn um helgina. Fitzpatrick fylgir í fótspor hins goðsagnakennda Jack Nicklaus en hann er aðeins annar kylfingur sögunnar, og sá fyrsti sem er ekki frá Bandaríkjunum, til að vinna áhugamannamót Bandaríkjanna (e. US Amateur) og meistaramótið (e. US Open) á sama velli en hann vann áhugamannamótið árið 2013.

Fitzpatrick hefur sjö sinnum landað sigri á Evrópumótaröðinni en aldrei unnið stórmót, það er fyrr en nú. 

Fyrir lokadag mótsins voru Fitzpatrick og Zalatoris jafnir. Sá fyrrnefndi spilaði á 68 höggum sem dugði til sigurs en en alls spilaði Fitzpatrick á sex höggum undir pari á meðan Zalatoris og Scheffler voru báðir á fimm höggum undir pari.

Fitzpatrick átti ótrúlegt skot úr glompu undir lok móts sem sá til þess að hann átti möguleika á titlinum. Skotið má sjá hér að neðan.

„Þetta er ólýsanleg tilfinning. Það er svo mikil klisja en þetta er eitthvað sem manni dreymir um sem barn. Ég gæti lagt kylfuna á hilluna á morgun og verið hamingjusamur maður,“ sagði Fitzpatrick við fjölmiðla að móti loknu.

Verandi frá Sheffield í Englandi þó tókst honum að blanda Sheffield United inn í umræðuna.

„Ég er eins – það býst enginn við að mér gangi vel, eða það býst enginn við að ég nái árangri. Mér líður eins og ég hafi þurft að leggja virkilega hart að mér til að ná þessum árangri. Það er hugarfarið hjá öllum þar sem ég ólst upp. Að vera lítilmagni og þurfa vinna fyrir því sem þú færð,“ bætti Fitzpatrick við.

Hann svo sannarlega fyrir kaupinu um helgina en alls fær hann 3,15 milljónir Bandaríkjadala í sinn hlut.


Öll stærstu golfmótin eru á Stöð 2 Golf en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Stöð 2 Golf kostar 3.990 krónur á mánuði en er einnig hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×