Erlent

Ör­lög Depp og Heard í höndum kvið­­dóms eftir sjón­­varps­við­burð aldarinnar

Fanndís Birna Logadóttir skrifar
Sex árum eftir að hjónabandi þeirra lauk hafa Johnny Depp og Amber Heard opinberað allt fyrir framan alþjóð. 
Sex árum eftir að hjónabandi þeirra lauk hafa Johnny Depp og Amber Heard opinberað allt fyrir framan alþjóð.  AP/Steve Helber

Sex vikna réttarhöldum í meiðyrðamáli Johnny Depp og Amber Heard lauk í dag. Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli þar sem Depp virðist njóta mikils stuðnings en Heard, og ungu barni hennar, hefur verið hótað lífláti. Kviðdómur reyndi að komast að niðurstöðu í kvöld en mun koma saman aftur á þriðjudag.

Samband leikaranna hefur ávallt verið stormasamt en þau kynntust við tökur á kvikmyndinni The Rum Diaries árið 2011. Þau giftu sig síðan í febrúar 2015 en rúmu ári síðan, í apríl 2016, fór Heard fram á skilnað og óskaði eftir nálgunarbanni.

Rúmum tveimur árum síðar, í desember 2018, birti Heard síðan skoðanagrein í Washington Post þar sem hún hélt því fram að hún væri þolandi heimilisofbeldis. Þó að Depp hafi hvergi verið nefndur á nafn í greininni var flestum ljóst að hún væri að tala um fyrrverandi eiginmann sinn.

Í ár var síðan greint frá því að Depp hefði höfðað meiðyrðamál gegn Heard þar sem hann krafðist 50 milljóna Bandaríkjadala vegna þess skaða hann hafði orðið fyrir í kjölfar greinarinnar. Heard ákvað þá að kæra Depp á móti og krafðist hundrað milljóna Bandaríkjadala vegna yfirlýsinga lögmanna Depps um blekkingar.

Þetta eru ekki fyrstu réttarhöldin sem tengjast sambandi þeirra en Depp höfðaði meiðyrðamál gegn breska götublaðinu The Sun fyrir tveimur árum eftir að þau sögðu í frétt að hann væri ofbeldismaður. 

Réttarhöldin hafa vakið gríðarlega athygli og hafa aðdáendur Depps fjölmennt fyrir framan dómsal í Virginíu undanfarnar vikur. AP/Craig Hudson

Depp tapaði þeim réttarhöldum þar sem breskur dómari komst að þeirri niðurstöðu að Depp hafi brotið á Heard. Nú ákvað Depp að sleppa milligönguliðnum og kæra fyrrverandi eiginkonu sína beint.

Fyndin augnablik í skugga alvarlegra ásakana

Réttarhöldin stóðu í heildina yfir í sex vikur en allar helstu sjónvarpsstöðvar vestanhafs sýndu beint frá þeim á hverjum einasta degi. Netverjar voru fljótir að skipa sér í fylkingar og skapaðist mikil heift í kringum málið. Flestir virtust koma Depp til varnar á meðan Heard var úthúðuð sem lygari.

Auk þeirra báru fjölmargir vitni fyrir dómi, þar á meðal fjölskyldumeðlimir, vinir og starfsmenn Depp og Heard. 

Einnig voru kallaðir til fyrrum elskhugar og ber þar einna helst að nefna fyrirsætuna Kate Moss sem var kölluð til eftir að Heard minntist á orðróm þess efnis að Depp hafði hrint henni niður stiga meðan þau voru í sambandi, sem Moss þvertók fyrir.

Misgáfuleg atvik komu upp á meðan réttarhöldunum stóð og stökk mörgum bros á vör við nokkur tilefni. 

Dyravörður sem notaði rafrettu og keyrði í miðjum vitnisburði, lífvörður sem kvaðst aldrei hafa séð kynfæri Depp, geiflur og skrýtnar getgátur geðlæknis, lögmaður sem mótmælti eigin spurningu, langar umræður um bollakökur, og kúkur í rúminu eru aðeins dæmi um atvik sem netverjar hlógu yfir.

Þó ákveðinn galsi hafi myndast við nokkur tilefni var kjarni málsins alvarlegur.

Depp og Heard bar ekki saman um margt sem átti sér stað á meðan stormasama hjónabandinu stóð og sökuðu hvort annað um að hafa beitt líkamlegu, andlegu og jafnvel kynferðislegu ofbeldi. Spilaðar voru upptökur sem sýndu ógeðslegan talsmáta og hegðun Depp og Heard í garð hvors annars.

Ferð parsins til Ástralíu var tíðrædd við réttarhöldin en Heard sakaði Depp meðal annars um að hafa nauðgað sér með brotinni vínflösku meðan þau dvöldu þar og Depp sakaði Heard um að hafa kastað vodka flösku í sig sama kvöld með þeim afleiðingum að hann missti hluta af fingri.

Vilja bæði meina að þau séu hin raunverulegu fórnarlömb 

Depp hefur ávallt haldið því fram að hann sé saklaus, að hann hafi aldrei slegið konu eða brotið á henni á þann hátt sem Heard lýsti. Þegar hann mætti í vitnastúku í síðasta sinn á miðvikudag sagði hann ásakanirnar niðurlægjandi, skelfilegar, sársaukafullar, og einfaldlega ekki sannar. „Sama hvað gerist mætti ég fyrir rétt og sagði sannleikann,“ sagði leikarinn.

Þá sparaði Camille Vasquez, einn af lögmönnum Depps, ekki stóru orðin í lokaávarpi sínu í dag.

Depp og Vasquez eru orðin náin eftir réttarhöldin og virtust þau ánægð eftir lokaávarpið. AP/Steve Helber

„Þau sönnunargögn sem lögð eru fram við þessi réttarhöld hafa sýnt fram á að frú Heard er í raun gerandinn en hr. Depp þolandinn,“ sagði Vasques og hvatti kviðdóminn til að frelsa Depp úr þeirri prísund sem hann hefur verið í undanfarin sex ár.

Þó að bent hafi verið á misræmi í framburði Heard og hún sökuð um lygar við nokkur tilefni hélt hún því fram allt að lokum að ásakanirnar væru sannar. Hún sagðist vera skelfingu lostin á hverjum degi og vísaði til linnulausra árása netverja og neikvæðrar umfjöllunar í hennar garð.

„Fólk vill drepa mig og ég fæ að heyra það á hverjum degi. Fólk vill setja barnið mitt í örbylgjuofn og segir það við mig,“ sagði Heard meðal annars þegar hún mætti í síðasta sinn í vitnastúku í gær.

Amber Heard knúsar einn af lögmönnum sínum, Elaine Bredehoft, eftir lokaávarp hennar. AP/Steve Helber

Í lokaávarpi sínu sagði Benjamin Rottenborn, einn af lögmönnum Heard, að það væru stjórnarskrárvarin réttindi hennar að tjá sig um meint ofbeldi sem hún varð fyrir. Þá vísaði hann til ógeðfelldra ummæla sem Depp hafði látið falla um hana, meðal annars að hann vildi „ríða brenndu líki hennar.“

„Þetta er gluggi inn í hug og hjarta uppáhalds sjóræningja Bandaríkjanna,“ sagði Rottenborn og vísaði til hlutverks Depps sem Jack Sparrow í Pirates of the Carribean kvikmyndunum. „Þetta er hinn raunverulegi Johnny Depp.“

Framhaldið er nú í höndum sjö manna kviðdóms sem hefur hlustað á um hundrað klukkustundir af vitnisburði. Hann reyndi að komast að niðurstöðu í kvöld en náði því ekki fyrir helgina og mun því koma aftur saman á þriðjudag.


Tengdar fréttir

Lög­menn Depps saumuðu að Heard í vitna­stúkunni

Réttarhöld í meiðyrðamáli bandaríska leikarans Johnny Depp á hendur fyrrverandi eiginkonu sinni, bandarísku leikkonunni Amber Heard, héldu áfram í dag. Þar var Heard borin þungum sökum af lögmannateymi Depps, meðal annars um að hafa barið hann og breytt ljósmyndum til að sýna fram á ofbeldi hans gegn henni.

„Ég hugsaði, svona mun ég deyja“

Amber Heard brast nokkrum sinnum í grát í réttarsal vestanhafs í dag er hún lýsti mörgum meintum árásum Johnnys Depp, fyrrverandi eiginmanns hennar. Hún sakaði hann meðal annars um að hafa kýlt sig í andlitið og nauðga sér með flösku.

Ógeðsleg SMS á milli Johnny Depp og Paul Bettany um Amber Heard

Hollywoodstjörnurnar Johnny Depp og Amber Heard takast nú á fyrir opnum tjöldum í réttarsal vestanhafs og saka hvort annað um ofbeldi á víxl. Fleiri stórleikarar hafa dregist inn í réttarhöldin og bæði þurfa að viðra allan óhreina þvottinn sinn fyrir heimsbyggðinni. 

Johnny Depp tapar meið­yrða­máli gegn The Sun

Bandaríski leikarinn Johnny Depp hefur tapað meiðyrðamáli gegn breska blaðinu The Sun. Depp höfðaði málið gegn blaðinu eftir að hafa verið sakaður um að hafa beitt þáverandi eiginkonu sína ofbeldi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×