Skólar ehf fjölga heilsueflandi leikskólum Skólar ehf 21. maí 2022 08:56 Markmið Heilsustefnunnar er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun í leik og að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar „Við erum að bæta tveimur sex deilda heilsuleikskólum við hjá Garðabæ. Annan þeirra, Urriðaból við Kauptún er áætlað að opna í september á þessu ári en hinn í september 2023 og verður sá við Holtsgötu ofar í götunni. Þetta verkefni er mikil áskorun en mjög spennandi,“ segir Guðmundur Pétursson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Skólar ehf.
Fyrir rekur Skólar ehf fjóra heilsuleikskóla á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum en Guðmundur stofnaði fyrirtækið ásamt syni sínum, Pétri R árið 2001 utan um rekstur leikskóla undir einkunnarorðunum „heilbrigð sál í hraustum líkama.“ Guðmundur Pétursson stofnandi Skólar ehf „Fyrsti heilsuleikskólinn sem við opnuðum var Krókur í Grindavík en hann hóf starfsemi ífebrúar 2001. Heilsuleikskólinn Kór í Kópavogi opnaði svo árið 2006 og einnig Ársól í Reykjavík, sem er ungbarnaleikskóli. Skógarás opnaði 2008 og einnig Hamravellir en hann færðist yfir til Hafnafjarðarbæjar árið 2019samkvæmt samkomulagi aðila,“ útskýrir Guðmundur. Gera heilbrigða lífshætti að lífsstíl til framtíðar Allir skólarnir starfa eftir sérstakri Heilsustefnu. Markmið Heilsustefnunnar er að auka gleði og vellíðan barna með áherslu á næringu, hreyfingu og sköpun í leik og að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir verði hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar. Upphaf stefnunnar má rekja til þróunar- og samstarfsverkefnisins European Network of Health Promoting Schools, sem hófst sem samstarfsverkefni Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, Evrópuráðsins og Evrópusambandsins árið 1992. Frumkvöðull þessarar stefnu í leikskólastarfi á Íslandi var Unnur Stefánsdóttir en hún starfaði sem framkvæmdastjóri faglega hluta Skóla ehf í mörg ár. Leiðandi í heilsueflandi leikskólastarfi Guðmundur segir starf Skóla ehf í stöðugri þróun og áhersla sé lögð á faglegt starf. „Við ætlum okkur að verða leiðandi í þekkingu og aðferðarfræði heilsueflandi leikskólastarfs á Íslandi, með heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins að leiðarljósi. Til að ná þessum markmiðum settum við meðal annars viðverustefnu á sem gengur út á að starfsmenn sem eru ekki frá vinnu í 6 vikur fá hálfan frídag í samráði við leikskólastjóra. Við fengum markþjálfa til að hitta alla starfsmenn fyrir sig og erum þessar vikurnar að klára niðurstöður úr þeirri vinnu. Við störfum eftir jafnréttisstefnu og erum að ljúka jafnlaunavottun. Þá unnum við sérstaka áætlun með Heilsuvernd með heilsu starfsmanna í fyrirrúmi og erum með samgöngustyrk, heilsueflingarstyrki, hópeflisstyrki og námsstyrki. Fyrir nokkrum árum gerðum við 8 vikna matseðil af næringarríkum mat sem allir skólar nota í dag. Þetta var unnið með næringarfræðing og í samráði við matráða okkar. Sérfræðingar í kennslu og námskeiðum mun hefjaþjálfun næsta vetur fyrir alla nýja starfsmenn. Auk þess munu þessir aðilar geta kennt leikskólaliðann og fleira sem er nauðsynlegt fyrir starfsfólk að hafa þekkingu á. Við teljum þetta muni styrkja starfsmenn okkar og þar með einnig faglega reksturinn á hverjum stað,“ segir Guðmundur. Nánar um starf heilsueflandi leikskóla má lesa hér.
Leikskólar Heilsa Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Fleiri fréttir Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Kia lækkar verð á rafbílum Hlunkurinn kominn í fantaform Teya fjárfestir í framtíð verslunar á Íslandi Greiðsluáskorun Lúxus kemur líka í litlum pökkum Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Verslun Húsasmiðjunnar á Akureyri fær alþjóðleg verðlaun Málning fyrir öll tilefni Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum glæsileg að vanda Hvað þarf marga giggara til að skipta um ljósaperu? N1 einn helsti bakhjarl KSÍ Miðaldra húsfrú á hálum ís - Polestar 3 reynsluakstur Frumsýning á nýjum Peugeot E-2008 rafbíl Plastkubbahús fyrir íslenskar aðstæður Tímamót í jeppasögunni – Konungurinn er mættur Fyrirtækjaþjónusta IKEA veitir þínu fyrirtæki byr undir báða vængi Glænýr og endurhannaður Ford Transit Custom frumsýndur Nýr Toyota C-HR – frumsýning á laugardag Brimborg frumsýnir nýjan Peugeot E-208 Eitt glæsilegasta skrifstofuhúsnæði borgarinnar hefur opnað - Regus Kirkjusandur InstaVolt lækkaði verð tímabundið á hraðhleðslustöðinni í Reykjanesbæ Rafmagnssportjeppinn Volvo EX30 frumsýndur - nettur, snjall og 100% rafmagn Frumsýning á Opel Corsa hefst í dag hjá Brimborg Bílalúgurnar eru okkar sérstaða Nú er hægt að greiða fyrir bílastæði með appi án aukagjalda Sjá meira