Lífið

Oddvitaáskorunin: Féll fyrir Scrapbooking myndaalbúmagerð sem varð að kortagerð

Samúel Karl Ólason skrifar
IMG_9390

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir leiðir lista Framsóknar í Hveragerði í komandi sveitarstjórnarkosningum.

Ég heiti Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, ég á þrjá syni, er skrifstofustjóri Framsóknar og bæjarfulltrúi í Hveragerði. Ég er guðfræðingur með kennsluréttindi og hef lokið námi í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun.

Ég er fædd og uppalin á Selfossi á uppvaxtarárunum var ég í barna- unglingakór Selfosskirkju og tók þátt í starfi Leikfélags Selfoss. Ég æfði sund frá táningsaldri enda alltaf verið mikið fyrir sundferðir. Ég gekk í Fjölbrautaskóla Suðurlands og útskrifaðist þaðan sem stúdent. Ég á margar góðar minningar úr þeim skóla, félagslífið var öflugt og tók ég bæði þátt í leikfélagi skólans og söngvarakeppninni. Í eitt ár var ég söngkona hljómsveitarinnar Á móti sól og náði því í skottið á sveitaballabransanum.

Ég hef búið í Hveragerði frá árinu 2007 og hér líkar mér vel. Í Hveragerði eru öflugir skólar og fjölbreytt íþróttalíf og hér er því gott að ala upp börn. Falleg náttúra í og við Hveragerði er ein af þeim fjölmörgu ástæðum þess að ég valdi að búa hér. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á samfélaginu og verið virk í félagsstarfi ýmissa félaga.

Framundan er spennandi tími í kosningabaráttunni. Listi Framsóknar í Hveragerði er skipaður frábærum hópi sem tilbúinn er til að leggja sitt af mörgum fyrir samfélagið sitt. Við höfum kynnt málefnaskrá okkar og leggjum áherslu á málefni fjölskyldunnar, lýðheilsu, atvinnu og skipulagsmál.

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi?

Hver er fallegasti staðurinn á Íslandi? Það eru svo margir fallegir staðir á Íslandi og hver staður hefur sinn sjarma, ég ætla að segja Þórsmörk en þar er alveg hægt að gleyma sér í fegurðinni.

Er eitthvað lítilvægt sem fer þó í taugarnar á þér í þínu sveitarfélagi sem þú vilt að sé lagað?

Ég læt hlutina yfirleitt ekki fara í taugarnar á mér en við getum t.d bætt aðstöðuna á útivistarsvæðum sveitarfélagsins.

Hvert er þitt uppáhalds áhugamál sem gæti þótt skrítið?

Árið 2005 féll ég fyrir Scrapbooking myndaalbúmagerð sem í seinni tíð hefur þróast yfir í kortagerð. Ef ég á stund þá þykir mér mjög róandi og gott að fá útrás fyrir sköpun við það að búa til kort.

Hver eru þín minnistæðustu samskipti við lögregluna?

Hraðasekt Borgarneslögrelgunnar eftir fótboltamót á Akureyri.

Hvað færðu þér á pizzu?

Skinku, ananas, sveppi og piparost eða Hráskinku, og rucola.

Hvaða lag peppar þig mest?

Fatboy Slim – Rockafeller Skank.

Hvað getur þú tekið margar armbeygjur?

Ekki hugmynd.

Göngutúr eða skokk?

Það eru ótal fallegar göngu- og hlaupaleiðir í og um Hveragerði. Það fer bara algjörlega eftir stuði og stemningu hvort ég fari í göngu eða út að skokka.

Uppáhalds brandari?

Bara allir brandararnir hans Ara Eldjárn.

Hvað er þitt draumafríi?

Mig dreymir um frí á Ítalíu og Grikklandi, menning, sól, gómsætur matur í góðum félagsskap.

Hvort fannst þér 2020 eða 2021 vera verra ár?

Þau voru bæði krefjandi en lærdómsrík.

Uppáhalds tónlistarmaður?

Ég er algjör alæta á tónlist og á því mjög erfitt með að gera upp á milli. Allt frá sálmum yfir í rokk og því tónlistafólkið eftir því.

Hvað er það skrýtnasta sem þú manst eftir að hafa gert?

Þetta er ekki beint skrýtið en það var sérstök tilfinning að standa á sviði á þjóðhátíð og syngja fyrir 5000 manns.

Ef það væri gerð kvikmynd um ævi þína, hver ætti að leika þig? Má vera íslenskur eða útlenskur.

Kate Winslet.

Hefur þú verið í verbúð?

Nei ekki reynslu af því.

Áhrifamesta kvikmyndin?

The Shawshank Redemption.

Áttu eftir að sakna Nágranna?

Það eru þó nokkuð mörg ár síðan ég hætti að horfa á Nágranna svo nei ég mun ekki sakna þeirra. Það kemur alltaf „maður í manns stað”.

Ef þú yrðir að flytja úr þínu sveitarfélagi, hvert myndir þú helst vilja fara?

Mín nánasta fjölskylda býr í Árborg svo kannski færi ég þangað eða prufa að búa í borginni. Annars líður mér mjög vel í Hveragerði.

Uppáhalds „guilty pleasure“ lag? (skammast þín smá fyrir að hafa gaman af því – sakbitin sæla)

SexyBack með Justin Timberlake.

Vísir skorar á oddvita stjórnmálaflokka út um allt land að taka þátt í Oddvitaáskoruninni til að kynna sig og sín málefni. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast með því að senda póst á samuel@stod2.is og anitaga@stod2.is. Fyrri Oddvitaáskoranir má skoða á síðunni visir.is/p/oddvitaaskorun.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×