Viðskipti innlent

Stórfyrirtæki framtíðarinnar kynnt til leiks á Siglufirði

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fjölmenni var á hátíðinni. Ráðherrar, ráðgjafar, frumkvöðlar og fjárfestar með fulla vasa.
Fjölmenni var á hátíðinni. Ráðherrar, ráðgjafar, frumkvöðlar og fjárfestar með fulla vasa. Vísir/Arnar

Fulltrúar tíu nýsköpunarfyrirtækja fengu tækifæri til að kynna fyrirtæki sitt fyrir fjársterkum aðilum á stórri fjárfestahátíð sem haldin var á Siglufirði í dag.

Nýsköpunarhreyfingin Norðanátt stóð fyrir hátíðinni, þar sem markmiðið var að kynna nýsköpunarfyrirtæki á Norðurlandi fyrir fjárfestum. Matur, vatn og orka voru áhersluorð hátíðarinnar.

„Þetta snýst rosa mikið um tengslamyndun og líka bara akkúrat að fá fjárfestana norður. Þetta hefur oft verið þannig að við höfum verið að fara suður til að sækja fjármagn ef þess þarf í start-up verkefni,“ sagði Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Eims, sem kom að skipulagningu hátíðarinnar.

Fulltrúar fjársterkra aðila fylgdust grannt með kynningum frumkvöðlanna, þar á meðal fulltrúi Eyris Venture Management, sem sérhæfir sig í að fjárfesta í verkefnum sem hafa sjálfbærni að leiðarljósi.

Sesselja Ingibjörg Barðdal Reynisdóttir - Framkvæmdastjóri EimsVísir/Arnar

Þið eruð væntanlega með alla anga úti að reyna að finna vænlega kosti. Er það oft sem þið fáið tækifæri eins og þetta, að koma eitthvað út á land að kynnast því sem er í gangi þar?

„Nei, það er ekki oft sem við fáum þetta tækifæri að koma út á land að kynnast þeim tækifærum sem eru úti á landi,“ sagði Stefanía Guðrún Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Venture Management.

„Það að það sé skipulagður svona viðburður þar sem við getum komið að sunnan, kynnt okkur þetta allt og fengið að sjá hvað hvað er að gerast. Þetta skiptir rosalega miklu máli, líka fyrir okkur, fyrir þau sem eru að starfa í þessum sprotafyrirtækjum og fyrir okkur sem erum í fjárfestingum,“ sagði hún einnig.

Möguleg stórfyrirtæki framtíðarinnar

Frumkvöðlafyrirtækin tíu eru fjölbreytt en öll með það að markmiði að vekja athygli á hátíðinni í dag. Efla tengslsin, frá ráðgjöf og mögulega næla sér í fjármagn fyrir framtíðina.

 Á meðal þeirra sem hélt kynningu í dag var Júlía Katrín Björke, framkvæmdastjóri Mýsköpunar, en Vísir kíkti í heimsókn í nýsköpunarfyrirtæki hennar í vetur.

„Þetta var náttúrulega mjög spennandi en dálítil áskorun líka. Það er ekki á hverjum degi sem maður er að kynna fyrirtækið sitt fyrir fullum sal af fólki og ráðherrum líka en frábært tækifæri,“ sagði Júlía Katrín.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar hélt erindi áður en frumkvöðlarnir kynntu fyrirtæki sín. Hvatti hún þá til dáða.Vísir/Arnar

Ráðherra nýsköpunarmála fylgdist grannt með og var ánægð með nýskökunarkraftinn á Norðurlandi.

Kannski leynist næsta stórfyrirtæki landsins hér?

„Þau leynast oft á svona stöðum,“ sagði Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×