Lífið

Vildu gefa strákunum sínum ítölskuna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Falleg fjölskylda sem flutti til Ítalíu.
Falleg fjölskylda sem flutti til Ítalíu.

„Þetta var erfiðara en maður bjóst við,” segir Hinrik Ingólfsson, 19 ára nemi í listaframhaldsskóla í Róm, sem flutti ásamt foreldrum sínum og bróður til Ítalíu fyrir rúmum áratug. Foreldrar hans, þau Hildur Hinriksdóttir hönnuður og Ingólfur Árnason leikstjóri, voru sjálf forfallnir aðdáendur Ítalíu og þegar drengirnir voru orðnir 4 og 9 ára ákváðu þau að flytja til fyrirheitna landsins og gefa drengjunum sínum ítölskuna.

„Það tók okkur báða svona þrjá mánuði að ná ítölskunni,” segir Hinrik. Hann segir þá bræður hafa byrjað strax í ítölskum skóla en man helst eftir hausverkjunum eftir skóladaginn því ítalskir nemendur séu mun hávaðasamari en íslenskir. Hann er hins vegar afar þakklátur foreldrum sínum í dag fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun. Ítalska skólakerfið er mjög frábrugðið því íslenska og krakkar þurfa strax í kringum 14 ára aldurinn að taka ákvörðun um hvers konar tegund af framhaldsskóla þau vilja fara í. Hinrik og bróðir hans Felix völdu báðir að fara í listaframhaldsskóla. Og eru mjög sáttir við þá ákvörðun.

Hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins.

Lóa Pind Aldísardóttir heimsótti fjölskylduna til Rómar í 4. þætti af “Hvar er best að búa?” þar sem áhorfendur fá innsýn í kosti og galla þess að vera Íslendingar á Ítalíu. Þátturinn var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi. Í þessari seríu heimsækir Lóa alls konar fólk og fjölskyldur sem býr í stórborgum, sveit, helli, fjallaþorpum, bæjum og miðaldaþorpum í Portúgal, Frakklandi, Tékklandi, á Grænlandi, Gran Kanaría og Ítalíu.

Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumaður er Ívar Kristján Ívarsson, klippingu önnuðust Kári Jóhannsson og Sigurður Kristinn Ómarsson hjá Obbosí. Framleitt af Lóu Production fyrir Stöð 2.

Klippa: Vildu gefa strákunum sínum ítölskuna





Fleiri fréttir

Sjá meira


×