Innlent

Kíló­metra löng aparóla úr Kömbum fyrir spennu­fíkla

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sem er mjög spennt fyrir nýju afþreyingunni, sem opnuð verður fyrir ferðamenn í sumar í Kömbunum.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, sem er mjög spennt fyrir nýju afþreyingunni, sem opnuð verður fyrir ferðamenn í sumar í Kömbunum. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Spennufíklar geta nú heldur betur farið að láta sig hlakka til því nú á að setja kílómetra langa aparólu frá Kömbum yfir á planið við þjónustuhúsið í Reykjadal. Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar er ekki viss um að hún þori að verða fyrsti gesturinn.

Það er fyrirtækið Kambagil ehf., sem áformar að setja á fót „zip-line“ afþreyingarmöguleika úr Kömbunum ofan Hveragerðis og niður á flatlendið við þjónustuhúsið í Reykjadal. Reistir verða pallar við upphaf og enda með tveimur samsíða línum strengdum á milli. Við upphafspallinn í Kömbunum verður útbúinn útsýnispallur fyrir gesti og gangandi. Forsvarsmenn Kambagils hafa m.a. stýrt og byggt upp ferðaþjónustu við Raufarhólshelli með góðum árangri. 

Verkefnið er unnið í samstarfi við kanadískt fyrirtæki sem hefur mikla reynslu af því að reisa samskonar mannvirki við náttúruperlur um allan heim. Lengd ferðarinnar í línunum er rétt rúmur einn kílómetri. 

Yfirlitsmynd yfir svæðið.Verkís

Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar eru mjög spennt fyrir verkefninu.

„Við erum nýbúin með deiliskipulag lóðar fyrir svokallaða svifbraut eða „zip line“. Það er tvöföld svifbraut, sem mun fara úr næst efstu beygjunni í Kömbunum og niður í dalinn þar fyrir neðan. Við eigum von á því að þetta muni verða mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustu í Hveragerði. Þetta verður eitthvað svakalegt því þetta er kílómetri, sem þú svífur yfir gil, ár og fossa, þetta verður skemmtilegt,“ segir Aldís.

En hvenær verður þetta tekið í notkun?

„Það liggur ekki alveg fyrir en við erum að vonast til að framkvæmdir hefjist þarna í byrjun maí og ef að vel gengur að hægt verði að fara fyrstu ferðirnar upp úr miðjum júní kannski.“

Línanna ferðarinnar er rétt rúmur 1 kílómetri.Verkís

Og ætlar bæjarstjórinn fyrstu ferðina?

„Ég veit það ekki, kannski,“ segir Aldís brosandi og spennt fyrir þessari nýjung í afþreyingu fyrir ferðamenn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×