Innlent

Hjálmar Bogi leiðir lista Fram­sóknar og fé­lags­hyggju í Norður­þingi

Árni Sæberg skrifar
Efstu sex á lista Framsóknar og félagshyggju í Norðurþingi. Frá vinstri, Hanna Jóna, Bylgja, Hjálmar Bogi, Soffía, Eysteinn Heiðar og Eiður
Efstu sex á lista Framsóknar og félagshyggju í Norðurþingi. Frá vinstri, Hanna Jóna, Bylgja, Hjálmar Bogi, Soffía, Eysteinn Heiðar og Eiður Aðsend

Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Framsóknar & félagshyggju í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi hjá Framsóknarfélagi Þingeyinga í dag. Hjálmar Bogi Hafliðason er þar efstur á blaði.

Oddviti listans er Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri og kennari á Húsavík, sem hefur setið níu ár í sveitarstjórn auk þess að vera varafulltrúi um tíma og sinnt þingstörfum. 

Soffía Gísladóttir skipar annað sætið og er búsett í Lindarbrekku í Kelduhverfi. Hún kemur ný inn á listann en hún þekkir svæðið vel sem forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi Eystra og Austurlandi og hefur einnig sinnt þingstörfum. 

Eiður Pétursson, vélstjóri á Húsavík og starfar fyrir Landsvirkjun, skipar þriðja sætið. Hann er varafulltrúi framboðsins í dag og hefur setið í fjölskylduráði sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. 

Þar á eftir koma Bylgja Steingrímsdóttir, Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Hanna Jóna Stefánsdóttir.

Listi Framsóknar og félagshyggju í Norðurþingi

  • 1. Hjálmar Bogi Hafliðason, Húsavík
  • 2. Soffía Gísladóttir, Kelduhverfi,
  • 3. Eiður Pétursson, Húsavík
  • 4. Bylgja Steingrímsdóttir, Húsavík
  • 5. Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Húsavík
  • 6. Hanna Jóna Stefánsdóttir, Húsavík
  • 7. Stefán Haukur Grímsson, Kópaskeri
  • 8. Heiðar Hrafn Halldórsson, Húsavík
  • 9. Brynja Rún Benediktsdóttir, Húsavík
  • 10. Unnsteinn Ingi Júlíusson, Húsavík
  • 11. Birna Björnsdóttir, Raufarhöfn
  • 12. Aðalgeir Bjarnason, Húsavík
  • 13. Guðlaug Anna Ívarsdóttir, Öxarfirði
  • 14. Bergur Elías Ágústsson, Húsavík
  • 15. Aðalheiður Þorgrímsdóttir, Reykjahverfi
  • 16. Óskar Ásgeirsson, Húsavík
  • 17. Unnur Erlingsdóttir, Húsavík
  • 18. Kristján Kárason, Húsavík


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×