Innlent

Skorar sérstaklega á eigendur fjölmiðla á Íslandi

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands
Sigríður Dögg Auðunsdóttir er formaður Blaðamannafélags Íslands Vísir/Vilhelm

Blaðamannafélag Íslands stendur fyrir fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélagsins, skorar á alla sem vettlingi geta valdið að leggja söfnuninni lið en alveg sérstaklega eigendur fjölmiðla á Íslandi.

Þannig geti þeir sýnt stuðning í verki og tekið sér stöðu með sannleikanum og blaðamönnum sem miðla honum til almennings. Sannleikurinn sé eitt það fyrsta sem láti undan í stríði og því sé mikilvægara sem aldrei fyrr að styðja við bakið á blaðamönnum.

„Það er gríðarlega mikilvægt á stundum sem þessum að umheimurinn fái upplýsingar byggðar á staðreyndum um það sem þarna er í gangi.“

Starfsbræður-og systur í Úkraínu búi við hörmulegar aðstæður. Verulegur skortur sé á öryggisbúnaði fyrir blaðamenn sem eru á staðnum sem og hjálpargögnum til fyrstu hjálpar. Þessi skortur sé sérstaklega áberandi hjá blaða-og fréttamönnum sem starfa hjá smærri miðlum.

„Við vitum til að mynda að það vantar hluti eins og öryggisvesti, hjálma, rafhlöður í hleðslubanka og annað. Við vitum líka til þess að það er hópur fólks sem þarf að flytja sig um set af öryggisástæðum og við vorum að vonast til að geta veitt fjárhagslegan stuðning til að fólkið geti komist í öruggt skjól.“

Sigríður segir að stríð gegn upplýsingum sé veigamikill þáttur í hernaði Rússlandsforseta.

„Þótt við sjáum hryllilegustu afleiðingar stríðsins bitna á almenningi í Úkraínu með ólýsanlegum hörmungum á borð við mannfall og stórfelldan flótta fólks af heimilum sínum og öðrum hryllingi þá er ljóst að Pútín háir ekki aðeins stríð gegn úkraínsku þjóðinni heldur fer hluti af stríðsrekstri hans fram heima fyrir og þar háir hann stríð gegn sannleikanum; gegn eigin fólki sem hann hefur undanfarin ár svipt grunnvallarmannréttindum sem er rétturinn til upplýsinga. Hann hefur ritskoðað fjölmiðla, beitt ofbeldi, morðum og fangelsun.“

Í morgun bárust fréttir af því að yfirvöld í Rússlandi hafi lokað fréttasíðum BBC, Voice of America, Radio Free Europe, Deutsche Welle og Meduza. Fjölmiðlarnir eru allir sakaðir um að dreifa „falsfréttum“ um innrás Rússa í Úkraínu.

„Pútín beitir öllum ráðum til að reyna að stýra upplýsingaflæði til fólks enda er litið svo á að eina leiðin til að stöðva hann sé almenningur í Rússlandi. En forsenda þess að almenningur geti risið upp gegn þessum hryllingi er að hann fái upplýsingar um það sem er í gangi og það er sannarlega ekki von til þess að það gerist í gegnum rússneska fjölmiðla. Þess vegna veit ég að heimsbyggðin öll stendur við bakið á úkraínskum fjölmiðlum og öðrum fjölmiðlum sem eru að reyna að miðla sannleikanum.“

Blaðamannafélagið hyggst einnig styrkja söfnunina.

Styrktarreikningur í umsjón blaðamannafélags Íslands:

Kt. 690372-0109

Reikningsnr: 0130-26-001515


Tengdar fréttir

Í stríði er sannleikurinn það fyrsta sem deyr

Í ávarpi forsætisráðherrans Magdalenu Anderson til sænsku þjóðarinnar, eftir að rússneski herinn hafði ráðist inn í Úkraínu, vakti hún sérstaklega athygli á því að nú þurfi almenningur að halda sér vel upplýstum um stríðið en jafnframt að vera vakandi fyrir aukinni dreifingu falsfrétta og upplýsingaóreiðu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×