Körfubolti

Mögnuð endurkoma Dallas í lokaleikhlutanum | Vandræði Lakers halda áfram

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Luka Doncic var stigahæsti maður vallarins í endurkomusigri Dallas Mavericks í nótt.
Luka Doncic var stigahæsti maður vallarins í endurkomusigri Dallas Mavericks í nótt. AP Photo/Marcio Jose Sanchez

NBA-deildin í körfubolta bauð upp á átta leiki í nótt. Þar á meðal vann Dallas Mavericks magnaðan endurkomusigur gegn Golden State Warriors, 107-101, eftir að hafa verið 19 stigum undir í fjórða leikhluta, og vandræði Los Angeles Lakers halda áfram eftir 28 stiga tap gegn New Orleans Pelicans, 123-95.

Heimamenn í Golden State tóku forystuna strax í upphafi leiks gegn Dallas Mavericks og eftir fyrsta leikhluta var staðan 37-24, Stríðsmönnunum í vil. Þeir héldu svi forskoti sínu út hálfleikinn og fóru inn í hlé með 12 stiga forystu, 60-48.

Það sama var uppi á teningnum í þriðja leikhluta þar sem heimamenn byggðu hægt og bítandi á forskot sitt. Þegar rétt tæpar tíu mínútur voru eftir af lokaleikhlutanum var munurinn orðinn 19 stig, 93-74.

Þá vöknuðu gestirnir heldur betur til lífsins og skoruðu 26 stig gegn aðeins einu stigi heimamanna. Þetta var í fyrsta skipti í leiknum sem gestirnir náðu forystunni og þeir létu hana aldrei af hendi eftir það og unnu að lokum sex stiga sigur, 1047-101.

Luka Doncic var stigahæsti maður vallarins með 34 stig fyrir DAllas Mavericks, en hann tók einnig 11 fráköst og gaf eina stoðsendingu. Í liði Golden State var Steph Curry atkvæðamestur með 27 stig, fjögur fráköst og tíu stoðsendingar.

Í leik Los Angeles Lakers og Nes Orelans Pelicans var ekki jafn mikil spenna. Nokkuð jafnræði var þó með liðunum í fyrri hálfleik, en að honum loknum var staðan 51-40, gestunum frá New Orleans í vil.

Þeir tóku svo öll völd í þriðja leikhluta og gjörsamlega keyrðu yfir heimamenn. Pelíkanarnir náðu mest 32 stiga forskoti og unnu að lokum öruggan 28 stiga sigur, 123-95.

Los Angeles-liðið hefur nú tapað þrem af seinustu fjórum leikjum sínum, og þá er liðið einnig án sigurs í átta af seinustu 11. LeBron James dró vagninn fyrir liðið í nótt og skoraði 32 stig.

Í liði New Orleans dreifðist stigaskorið mun betur yfir liðið, en þar var CJ McCollum stigahæstur með 22 stig. Þá átti fyrrum Lakers-maðurinn Brandon Ingram flottan leik, en hann skorði 19 stig, tók fimm fráköst og gaf átta stoðsendingar.

Úrslit næturinnar

Philadelphia 76ers 125-109 New York Knicks

Utah Jazz 118-114 Phoenix Suns

Boston Celtics 107-128 Indiana Pacers

Detroit Pistons 127-126 Charlotte Hornets

Los Angeles Clippers 99-98 Houston Rockets

Dallas Mavericks 107-101 Golden State Warriors

Denver Nuggets 124-92 Portland Trailblazers

New Orleans Pelicans 123-95 Los Angeles Lakers

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×