Bílar

Kia efst áttunda árið í röð hjá J.D. Power

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ný Niro.
Ný Niro.

Kia er í efsta sætinu í árlegri áreiðanleikakönnun banda­ríska grei­ning­ar­fyr­ir­tæk­is­ins J.D. Power yfir bílaframleiðendur. Þetta er áttunda árið í röð sem Kia er í efsta sætinu í könnun J.D. Power í flokki bíla sem teljast magnsölubílar. Þetta er þó í fyrsta skipti sem Kia er í fyrsta sæti yfir öll bílmerki, ekki einungis magnsöluframleiðendur og því er sannarlega um tímamót að ræða.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning frá Öskju.

Í könnun J.D. Power voru rúmlega 33 þúsund bíleigendur spurðir fjölmargra spurninga á mörgum mismunandi svipuð um áreiðanleika bíla þeirra og bilanir síðustu þrjú ár. Könnunin var framkvæmd í júlí til nóvember á síðasta ári en í þetta skipti var hluta bætt við sem snýst að hugbúnaðarbilunum og er það í fyrsta skipti sem það er gert. Með þessari könnun er J.D Power að fá sem besta mynd af gæðum bíla allra bílaframleiðanda. Þetta er í 36. skipti sem könnun J.D. Power er framkvæmd en hún þykir ein virtasta áreiðanleikakönnun í bílageiranum.

Buick Encore. Buick varð í öðru sæti.

Niðurstöður könnunarinnar

Talan segir til um bilanir pr. 100 bíla:

Kia 145
Buick 147
Hyundai 148
Genesis 155
Toyota 158
Lexus 159
Porsche 162
Dodge 166
Cadillac 168

„Við erum afar ánægð og stolt með þennan frábæra árangur Kia í áreiðanleikakönnun J.D. Power. Kia hefur lagt mikið upp úr því að framleiða trausta og vel hannaða bíla þar sem nýjasta tækni og öryggi spila stórt hlutverk ásamt mjög góðum aksturseiginleikum. Kia var fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum til að bjóða 7 ára ábyrgð á bílum sínum. Það er því stór rós í hnappagat Kia að vera á toppnum áttunda árið í röð í þessari virtu könnun hjá J.D Power yfir bílaframleiðendur í magnsölu sem og að vera núna í fyrsta skipti í fyrsta sæti yfir öll bílmerki,“ segir Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×