Sara Rún stigahæst í naumum sigri Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 9. febrúar 2022 17:48 Sara Rún Hinriksdóttir og stöllur hennar í Phoenix Constanta unnu nauman sigur í dag. Alex Nicodim/NurPhoto via Getty Images Sara Rún Hinriksdóttir, landsliðskona í körfubolta, var stigahæsti leikmaður vallarins er Phoenix Constanta vann nauman útisigur gegn Targu Mures í rúmensku deildinni í körfubolta í dag. Lokatölur urðu 56-49, en Sara skoraði 16 stig.
Gestirnir í Phoenix sáu til þess að þær voru með örugga forystu eftir fyrsta leikhlutann með því að halda heimakonum í aðeins þremur stigum. Sara og stöllur skoruðu hins vegar 15 og fóru því með 12 stiga forskot inn í annan leikhlutann. Sá var mun jafnari, en gestirnir héldu forskoti sínu þó út hálfleikinn. Þegar gengið var til búningserbergja var staðan 28-16, Phoenix í vil. Heimakonur vöknuðu loksins til lífsins í upphafi síðari hálfleiks og söxuðu fljótt á forskot Phoenix. Þær náðu meira að segja tveggja stiga forskoti undir lok þriðja leikhluta, en gestirnir í Phoenix endurheimtu þó forystuna áður en komið var að lokaleikhlutanum. Mikið jafnræði var í lokaleikhlutanum og liðin skiptust á að skora. Sara og stöllur hennar sigu svo fram úr á lokamínútunum og unnu að lokum sjö stiga sigur, 56-49. Eins og áður segir skoraði Sara Rún 16 stig fyrir Phoenix, en ásamt því tók hún níu fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Phoenix Constanta situr í fimmta sæti deildarinnar með 26 stig eftir 17 leiki, þremur stigum meira en Targu Mures sem situr sæti neðar.
Körfubolti Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira