Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra sagði í gær að hann gerði ráð fyrir að stórt skref verði stigið í afléttingum sóttvarnaaðgerða á föstudaginn. Þá verða tvær viknur liðnar frá því að stjórnvöld kynntu afléttingaráætlun sína, en stefnan er að búið verði að aflétta öllu um miðjan mars og það verði gert í þremur skrefum.
Áætlað að sóttkví og einangrun fari á föstudag
Samkvæmt áætlun Willums verður þetta næst skref tekið á föstudag, tíu dögum fyrr en áætlað var upprunalega. Afléttingaáætlunin gerir ráð fyrir að í þessu öðru skrefi megi tvö hundruð koma saman, fjöldatakmarkanir á sitjandi viðburðum verði eitt þúsund manns. Skemmtistaðir og veitingastaðir megi hafa opið til eitt en síðustu gestir komi inn fyrir miðnætti, svo fátt eitt sé nefnt.
Þá er áætlað að einangrun og sóttkví verði afnumin í þessu næsta skrefi, þó Willum hafi sagt í gær að fullsnemmt væri að tjá sig nákvæmlega um hvaða skref yrðu tekin. Þá hefur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir ekki skilað inn minnisblaði til ráðherra með tillögum sínum að afléttingum samkvæmt heimildum fréttastofu og enn er ekki útilokað að tillögur hans verði aðrar en áætlunin gerir ráð fyrir.
„Öll mega mæta veik í vinnuna eins og í gamla daga“
Þetta hefur vakið furðu meðal netverja, þar á meðal hjá athafnamanninum Steinþóri Helga Arnsteinssyni, sem rekur meðal annars barinn Röntgen.
„Bíddu bíddu bíddu. Á að afnema einangrun og sóttkví núna á fös en ekki grímuskyldu? Og barir mega bara hafa opið til 00/01? Er það ekki, uh... ógeðslega skrýtið?“ skrifar Steinþór á Twitter.
Bíddu bíddu bíddu. Á að afnema einangrun og sóttkví núna á fös en ekki grímuskyldu? Og barir mega bara hafa opið til 00/01? Er það ekki, uh… ógeðslega skrýtið? https://t.co/T8YeWBeAIO
— Steinþór Helgi (@StationHelgi) February 9, 2022
Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamaður á RÚV, segir þessa áætlun vægast sagt hafa farið öfugt ofan í menntaskólanemann á heimilinu og bendir á að samkvæmt þessu þurfi fólk ekki að fara í einangrun en menntaskólanemar geti enn ekki farið á böll.
Þetta fór vægast sagt öfugt ofaní menntaskólanemann á heimilinu. Engin böll, en engin sóttkví/einangrun.
— Einar Örn Jónsson (@RanieNro) February 9, 2022
Og fleiri taka í sama streng. Jón Bjarni segir þessa áætlun hreint út andstyggilega.
HVER ER TILGANGURINN Á AÐ FELLA NIÐUR EINANGRUN OG SÓTTKVÍ EN EKKI FJÖLDATAKMARKANIR???
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) February 9, 2022
LÍKA BARA HÆKKA SITJANDI VIÐBURÐI Í 1000 MANNS???? EN EKKI FOKKING MENNTASKÓLAVIÐBURÐI?????
Þessar nýju reglur eru eiginlega bara ógeðslega andstyggilegar. 200 einstaklingar undir 15 mega koma saman, einangrun og sóttkví feld niður, opnunartímar veitingastaða framlengdir og 1000 manns mega koma sér saman á leikrit.
— Jón Bjarni (@jonbjarni14) February 9, 2022
En menntskælingar fá í alvöru ekki neinar undanþágur.
Halldór Auðar Svansson segir að sér hafi þótt grímuskyldan minnst íþyngjandi af þeim aðgerðum sem hafa verið í gildi.
Grímuskylda finnst mér reyndar minnst íþyngjandi af þessu öllu saman. Þetta er kannski sýnilegasta atriðið en miðað við sóttkví, einangrun og samkomutakmarkanir finnst mér það lítið. Sérstaklega þegar grímuskyldan er komin niður í að gilda bara í návígi.
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) February 9, 2022
Okei grímu skylda verður enþá en sóttkví og einangrun verða ekki???
— hekla (@hjekla) February 9, 2022
Nennir eih plis að útskýra hvernig þetta á að virka
Óskar Steinn segir loksins komið að því að Íslendingar geti mætt aftur veikir í vinnuna, eins og í gamla daga.
eftir helgi fellur einangrun niður sem þýðir að öll mega mæta veik í vinnuna eins og í gamla daga 🙌
— óskar steinn (@oskasteinn) February 9, 2022
Sem Auður Kjerúlf er síður en svo sátt með.
Ef þú beilar á einangrun og mætir smitaður í tíma með mér mun ég ekki hika við að troða kaktusi upp í rassaholuna þína 🙂
— Audi (@audurkjerulf) February 9, 2022
2254 smit í gær á sama tíma og það er verið að tala um að afnema einangrun og sóttkví á næstu dögum 🙃 hahahahaha ég er skíthrætt 🥲
— Reyn Alpha (@haframjolk) February 9, 2022
Frá og með föstudeginum má semsagt fara á djammið með virkt Covid smit enda fellur einangrun niður, en það má samt bara djamma til miðnættis. https://t.co/cR5P7iqFBe
— Hafliði Breiðfjörð (@haflidib) February 9, 2022
Sko er ekki last step að hætta með einangrun? Er ekki hægt að afletta fyrst? Er það svo hræðilegt? Er svo hræðilegt að sja unga folkið að hafa gaman?💅🏼
— Dóra💅🏼 (@doratomm) February 9, 2022