Lífið

Kolbrún Pálína selur íbúðina í Lindarsmára

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Í íbúðinni eru fimm svefnherbergi.
Í íbúðinni eru fimm svefnherbergi. Samsett/fasteignaljosmynun.is

Kolbrún Pálína Helgadóttir markaðsfulltrúi hjá Icepharma hefur sett íbúð sína í Hlíðunum í Kópavogi á sölu. Kolbrún Pálína er mikill fagurkeri og íbúðin einstaklega smekkleg og falleg.

„Ég veit fátt skemmtilegra og meira gefandi en að búa til fallegt heimili fyrir mig og mína og gera þau að mínu. Hér er okkur búið að líða stórkostlega saman fjölskyldunni gegnum heimsfaraldurinn þar sem eldaður hefur verið matur í þessu drauma eldhúsi og margt fleira,“ segir Kolbrún Pálína í samtali við Lífið. 

„Núna ætlum við aðeins að breyta um áherslur og bæta við okkur smá garði og skapa fleiri fallegar minningar. Að sjálfsögðu í Kópavoginum.“

Eignin er staðsett í Lindasmára 39 og er 165 fermetrar að stærð. Uppsett verð er 89.900.000. Íbúðin er skráð sjö herbergja þar af eru fimm svefnherbergi, stofa og sjónvarpshol. 

Íbúðin er á tveimur hæðum með mikilli lofthæð yfir stofu og eldhúsi eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan. Frekari upplýsingar má finna á Fasteignavef Vísis

Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is
Fasteignaljósmyndun.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×