Heimsmarkmiðin

Rauði krossinn styrkir flutning á 30 súrefnisvélum til Sómalíu

Heimsljós
Rauði krossinn

Hluti framlaganna er greiddur með stuðningi utanríkisráðuneytisins.

Rauði krossinn hefur ákveðið að efla COVID-19 neyðarviðbrögð í Sómalíu með því að styrkja flutning á 30 súrefnisvélum til sómalíska Rauða hálfmánans sem gegnir mikilvægu stoðhlutverki við þarlend yfirvöld og tekur virkan þátt í baráttunni við COVID-19 faraldurinn. Hluti framlaganna er greiddur með stuðningi utanríkisráðuneytisins í formi rammasamnings um alþjóðlega mannúðaraðstoð.

„Þessi stuðningur bætist við fyrri stuðning við baráttuna gegn heimsfaraldrinum,“ segir í frétt frá Rauða krossinum. „Árið 2020 veitti Rauði krossinn á Íslandi tæpum 30 milljónum króna til COVID-19 viðbragða Rauða kross hreyfingarinnar í Afríku og í Mið-Austurlöndum auk þess að senda fjóra sendifulltrúa til að taka þátt í COVID-19 viðbrögðum. Sendifulltrúarnir hafa tekið þátt í starfi hreyfingarinnar frá höfuðstöðvum Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans í Genf, frá svæðisskrifstofu Alþjóðasambandsins í Evrópu, skrifstofu Alþjóðasambandsins í Líbanon og á COVID-19 sjúkraeiningu í Jemen.“

Á heimsvísu eru viðbrögð Rauða kross hreyfingarinnar mjög yfirgripsmikil. Viðbrögðunum má skipta í þrjá meginþætti:

  • Að viðhalda og efla heilbrigði og hreinlæti
  • Takast á við félagslegar og efnahagslegar afleiðingar faraldsins
  • Að efla og byggja upp landsfélög hreyfingarinnar á sjálfbæran hátt svo þau verði betur búin að takast á við stóráföll og afleiðingar þeirra.

Í fréttinni segir að líkt og Rauði krossinn á Íslandi hafi mikilvægu hlutverki að gegna innan almannavarna á Íslandi gegni önnur landsfélög hreyfingarinnar mikilvægu stoðhlutverki við sín yfirvöld þó hlutverkin geti verið mismunandi á milli landa. Víða reki landsfélögin heilsugæslur og jafnvel spítala, landsfélög í Afríku og Mið-Austurlöndum hafi mikla reynslu af samfélagslegri heilbrigðisþjónustu, eftirliti með faröldrum og heilbrigðisfræðslu svo fátt eitt sé nefnt. „Landsfélög eru því mörg hver vel sett til að taka þátt í bólusetningaraðgerðum. Landsfélög hafa einnig hugað að sálfélagslegum stuðningi og brugðist við félags og efnahagslegum afleiðingum faraldursins með matar og fjárstuðningi, skjóli og félagslegri aðhlynningu.“

Með stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins getur Rauði krossinn á Íslandi stutt Sómalíska Rauða hálfmánann og önnur landsfélög í baráttunni gegn COVID-19.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×