Bílar

Myndir af nýjum Mini leka á netið

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ein af myndunum sem lak. Fengin af Twitter.
Ein af myndunum sem lak. Fengin af Twitter.

Myndum af næstu kynslóð hins goðsagnakennda Mini hlaðbaks hefur verið lekið á netið. Þær birtust upprunalega í kínverskum fjölmiðlum en eru nú komnar í talsverða dreifingu á samfélagsmiðlum.

Myndirnar virðast teknar á einkarekinni prófunarstofu í Kína. Þónokkur fjöldi af frumgerðum virðist vera í prófunum hjá fyrirtækinu í felulitum. Einn bíll hefur verið myndaður án felulitanna. Útlit fjórðu kynslóðar flaggskips Mini sést þá vel.

Myndunum var lekið skömmu eftir að Mini birti opinberar myndir af frumgerðinni fyrir næstu kynslóð sem sýndu smávægilegar breytingar í útliti. Opinberu myndirnar voru allar af bílnum í felulitum.

Bíllinn er ekki væntanlegur fyrr en árið 2023, bíllinn mun vera búinn skilvirkum bensín og dísel vélum, þeir bílar verða framleiddir í Oxford, Bretlandi. Einnig verður hrein raf-útgáfa framleidd í verksmiðju Great Wall Motors í Kína. Great Wall Motors er samstarfsaðili BMW. Mini ætlar að vera búið að ljúka rafvæðingu sinni árið 2030.

Svo virðist sem Mini hafi minnkað bílinn talsvert frá síðustu kynslóð. Eins gefa myndirnar góðar upplýsingar um hönnun innra rými bílsins. Blæjubíll verður smíðaður í Bretlandi frá og með árinu 2025. Ekkert hefur heyrst af áætlunum um fimm dyra útgáfu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×