Rússar með góðan sigur gegn Ítölum í riðli Íslands Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. nóvember 2021 17:53 Rússar og Ítalir mættust í fyrsta leik H-riðils okkar Íslendinga í undankeppni HM 2023 fyrr í dag. Mike Kireev/NurPhoto via Getty Images Rússar unnu góðan 14 stiga sigur gegn Ítölum er liðin mættust í fyrsta leik H-riðils okkar Íslendinga í undankeppni HM 2023 í körfubolta, 92-78.
Mikið jafnræði var með liðunum í upphafi leiks og bæði lið áttu erfitt með að koma mikið af stigum á töfluna. Liðin skiptust á að hafa forystuna, en að fyrsta leikhluta loknum höfðu Rússar eins stigs forystu, 15-14. Rússarnir höfðu svo frumkvæðið lengst af í öðrum leikhluta og náðu mest átta stiga forskoti í stöðunni 35-27. Þá tóku Ítalir gott áhlaup og skoruðu tíu stig gegn tveimur stigum Rússa undir lok hálfleiksins, og staðan var því jöfn, 37-37, þegar gengið var til búningsherbergja. Rússneska liðið byrjaði seinni hálfleikinn af miklum krafti og skoraði fyrstu tíu stig þriðja leikhluta. Ítalir unnu sig þó hægt og rólega aftur inn í leikinn og þegar komið var að lokaleikhlutanum var munurinn fimm stig, staðan 64-59, Rússum í vil. Nokkuð jafnræði var með liðunum í upphafi fjórða leikhluta, en þegar um fimm mínútur voru til leiksloka tóku Rússar öll völd. Þeir skoruðu tíu stig í röð og komust þar með 15 stigum yfir. Eftir það var ekki aftur snúið fyrir Ítali, og Rússar unnu góðan 14 stiga sigur, 92-78. Anton Astapkovich var stigahæstur í liði Rússa með 21 stig, en hann tók einnig fimm fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Stefano Tonut var atkvæðamestur í ítalska liðinu með 20 stig, þrjú fráköst og sex stoðsendingar.
HM 2023 í körfubolta Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Arnar sendir pillu á FIFA Fótbolti Van Dijk sendi Slot kveðju Enski boltinn KR - KA | Hraðlestin komin aftur af stað? Íslenski boltinn HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira