Heimsmarkmiðin

Hundruð flóttamanna bjargað á Miðjarðarhafi

Heimsljós
Rauði krossinn

Áhöfn björgunarskips Rauða krossins og SOS Mediterranee hefur þegar bjargað hundruðum sem freista þess að komast yfir Miðjarðarhafið á tré- eða gúmmíbátum.

Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að styðja mannúðar- og lífsbjargandi verkefni alþjóða Rauða krossins fyrir flóttamenn á landi og sjó við Miðjarðarhaf með fjárframlagi og mannafla. Björgunarskipið Ocean Viking, sem alþjóða Rauði krossinn og samtökin SOS Mediterranee halda úti, er hluti af þeirri mannúðaraðstoð sem veitt er flóttafólki við Miðjarðarhaf. Um borð í skipinu eru læknar og hjúkrunarfólk. Í bakvarðarsveit björgunarskipsins er Þórir Guðmundsson. Hann starfar með upplýsingateymi svæðaskrifstofu Rauða krossins í Evrópu sem hefur aðsetur í Búdapest.

Áhöfn björgunarskipsins hefur þegar bjargað hundruð kvenna, karla og barna sem freista þess að komast yfir Miðjarðarhafið á illa búnum tré- eða gúmmíbátum. Í frétt Rauða krossins á Íslandi segir að aðstæður fólks í þessum bátskænum séu oftar en ekki mjög erfiðar. „Fólk hefur verið á reki í marga daga í yfirfullum bátum þar sem matur og drykkjarvatn er af skornum skammti. Í hópi flóttamanna eru jafnvel ung börn ein á ferð án foreldra eða fylgdarmanna,“ segir í fréttinni.

Fyrr í mánuðinum aðstoðaði Ocean Viking annað björgunarskip, sem var með 800 manns um borð, með því að útvega matvæli og og önnur hjálpargögn. „Það var gott dæmi um samstarf í hjálparstarfi – og reyndar tók flóttafólkið í Ocean Viking fullan þátt í að ferja hjálpargögnin yfir til fólksins í hinu skipinu.“

Ocean Viking bjargaði alls 314 konum, körlum og börnum í yfirstandandi leiðangri en skipið er nú í höfn í Augusta á Sikiley. Þar komst fólkið loks í land á mánudag, sumir eftir tíu daga um borð í skipinu. Síðustu dagana var mikill öldugangur og grenjandi rigning þannig að flóttafólkið var orðið mjög hrakið þegar skipið lagði loks að bryggju. Þar tók ítalski Rauði krossinn á móti þeim.

Sjá nánar í frétt á heimasíðu Rauða krossins.

Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×