Körfubolti

Bucks tapaði, Warri­ors ó­­­stöðvandi, Lakers ömur­­legt og Evrópu­menn í þrennu­ham

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Stephen Curry var með sýningu í nótt. 40 stig, þar af 27 úr þriggja stiga skotum.
Stephen Curry var með sýningu í nótt. 40 stig, þar af 27 úr þriggja stiga skotum. Ezra Shaw/Getty Images

Það var nóg um að vera í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem alls fóru fram 11 leikir.

Milwaukee Bucks lá gegn Boston Celtics, Golden State Warriors eru á góðu skriði en þeir rúlluðu yfir Chicago Bulls og þá tapaði Los Angeles Lakers fyrir slöku liði Minnesota Timberwolves. 

Þá voru stóru nöfnin frá Evrópu með tvöfalda þrennu í sigrum Denver Nuggets og Dallas Mavericks.

Meistarar Milwaukee hafa ekki byrjað tímabilið sérstaklega vel og svipaða sögu er að segja af Boston Celtics. Það hjálpaði meisturunum ekki að vera án Giannis Antetokounmpo en hann er besti leikmaður liðsins og mögulega deildarinnar í heild.

Leikurinn var samt sem áður hörkuskemmtun og mjög spennandi frá upphafi til enda. Staðan að loknum venjulegum leiktíma var 108-108 og því þurfti að framlengja. Þar reyndust Boston sterkari aðilinn og unnu að lokum níu stiga sigur, lokatölur 122-113.

Dennis Schröder var stigahæstur í liði Celtics með 38 stig en þar á eftir kom Jayson Tatum með 27 stig ásamt því að taka 11 fráköst. Bobby Portis var stigahæstur hjá Bucks með 22 stig, þá skoraði Jrue Holiday 17 stig og gaf 13 stoðsendingar.

Golden State Warriors höfðu unnið 10 af 11 leikjum sínum á leiktíðinni er þeir mættu spræku liði Bulls í nótt. Það reyndist engin fyrirstaða er Warriors unnu einkar þægilegan 26 stiga sigur, 119-93 lokatölur.

Stephen Curry var gjörsamlega sjóðandi heitur í nótt en hann skoraði 40 stig í leiknum. Hjá Bulls var Zach LaVine stigahæstur með 23 stig.

Los Angeles Lakers er enn án LeBron James og liðið heldur áfram að eiga í vandræðum með lélegustu lið deildarinnar. Að þessu sinni tapaði liðið gegn Minnesota Timberwolves sem höfðu aðeins unnið þrjá af 10 leikjum sínum til þessa á leiktíðinni.

Fjórði sigurinn kom í nótt og segja má að þriðji leikhluti hafi orðið Lakers að falli, ekki í fyrsta skipti. Liðið kom illa stemmd út í síðari hálfleik, skoraði aðeins 12 stig og fékk á sig 40. Lokatölur 107-83 Timberwolves í vil og Lakers ekki í góðum málum eins og staðan er í dag.

Karl-Anthony Towns var stigahæstur hjá Timberwolves með 29 stig og þar á eftir kom fyrrum Lakers-maðurinn D‘Angelo Russell með 22 stig. Hjá Lakers skoraði Anthony Davis 22 stig og Russell Westbrook kom þar á eftir með 20 stig.

Nikola Jokić var með þrefalda tvennu í níu stiga sigri Denver Nuggets á Atlanta Hawks, lokatölur 105-96. Jokić skoraði 22 stig, gaf 10 stoðsendingar og tók 19 fráköst. Á hinum enda vallarins var Trae Young með 30 stig og 9 stoðsendingar.

Luka Dončić vildi ekki vera minni maður og bauð einnig upp á þrefalda tvennu í sigri Dallas Mavericks á San Antonio Spurs, lokatölur 123-109. Dončić skoraði 32 stig, gaf 15 stoðsendingar og tók 12 fráköst.

Önnur úrslit

Charlotte Hornets 104 – 96 New York Knicks

Cleveland Cavaliers 98 – 78 Detroit Pistons

New Orleans Pelicans 112 – 120 Brooklyn Nets

Houston Rockets 92 – 104 Portland Trail Blazers

Oklahoma City Thunder 105 – 103 Sacramento Kings

Memphis Grizzlies 94 – 119 Phoenix Suns

San Antonio Spurs 109 – 123 Dallas Mavericks


NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×