Viðskipti innlent

Leitar réttar síns eftir að NS tók stöðu gegn Hróa hetti

Eiður Þór Árnason skrifar
Viktor Urbancic, framkvæmdastjóri Sparibíls og annar eigandi bílasölunnar.
Viktor Urbancic, framkvæmdastjóri Sparibíls og annar eigandi bílasölunnar. Samsett

Forsvarsmaður Sparibíls fordæmir niðurstöðu Neytendastofu (NS) í máli bílasölunnar og sakar stofnunina um að ganga erinda samkeppnisaðilans. Stjórnendur hyggjast leita réttar síns og kæra ákvörðunina til áfrýjunarnefndar neytendamála.

Vísir greindi frá því í dag að Neytendastofa hafi komist að þeirri niðurstöðu að rangar og villandi fullyrðingar hafi komið fram í bílaauglýsingum Sparibíls. Varðaði málið fullyrðinguna „Sömu bílar bara miklu ódýrari“ og að verð Mitsubishi Outlander PHEV jepplings væri 800 þúsund krónum undir listaverði.

Taldi stofnunin að þó auglýstur bíll gæti talist staðgönguvara bíls sömu tegundar frá umboðsaðilanum Heklu væri samanburðurinn villandi þar sem ekki hafi verið lögð fram gögn sem sýndu með óyggjandi hætti að auglýstur bíll Sparibíls væri búinn sömu aukahlutum eða aukabúnaði og samanburðarbíll.

Neytendastofa vinni gegn hag neytenda

Viktor Urbancic, framkvæmdastjóri Sparibíls og annar eigandi bílasölunnar, er ósáttur við að úrskurðurinn hafi verið birtur opinberlega áður en áfrýjunarfresti lauk.

„Ég er alls ekki sammála þessum úrskurði og í mínum huga er þetta bara bull, stundum kallað tittlingaskítur. Þeir taka þarna málstað gömlu einokunarfyrirtækjanna gegn Hróa Hetti á markaðinum sem býður betra verð. Neytendastofa vinnur því gegn hag neytenda með því að reyna að bregða fæti fyrir okkur,“ segir Viktor í yfirlýsingu.

Málið varðaði jeppling að gerðinni Mitsubishi Outlander PHEV.Getty/Stefano Guidi

Viktor segir túlkun Neytendastofu byggja á orðhengilshætti sem snúi að því að tveir bílar úr sömu verksmiðju, annar seldur hjá Heklu og hinn hjá Sparibíl, séu ekki sömu bílar. Þegar hann hafi verið beðinn um að sanna að um væri að ræða eins bíla hafi hann svarað því að leiðsögubúnaðurinn hafi virkað í bílnum hjá Sparibíl en ekki í bíl Heklu. Um væri að ræða aukabúnað sem gæti vel kostað um 200 þúsund krónur.

Töldu auglýsta fimm ára ábyrgð vera villandi

Neytendastofa taldi að ótvírætt orðalag um fimm ára ábyrgð í auglýsingum Sparibíls væri villandi og að það skipti máli yfir neytendur að skilyrði ábyrgðarinnar komi fram í auglýsingunum. Viktor segir þetta ógjörning.

„Ábyrgðarskilmálarnir eru 7 þétt skrifaðar A4 blaðsíður og engin leið að koma þeim inn í svona auglýsingu. Það tók mig ekki nema 10 mínútur að prenta út auglýsingar frá nánast öllum umboðunum með samskonar merki þar sem ábyrgð er sögð vera 5 ár eða 7 ár einnig frá Heklu.

Ekkert af umboðunum var með ábyrgðarskilmálana í auglýsingunni. Hvernig er það á móti hag neytandans eða slæmir viðskiptahættir að láta neytandann vita að bíllinn sem hann er að kaupa er í 5 ára ábyrgð?“ spyr Viktor í yfirlýsingu sinni.

Viktor segir að að það sé með ólíkindum að Neytendastofa „fari í þessa vegferð“ og kalli þetta slæma viðskiptahætti.

„Það er hinsvegar skiljanlegt að Hekla reyni að losna við samkeppnina þar sem við seldum um 120 Mitsubishi Outlander bíla á einu ári til ánægðra viðskiptavina fyrir miklu lægra verð en þeir hefðu þurft að borga hjá Heklu. Það er hinsvegar óhæft að Neytendastofa láti plata sig í að hjálpa til við það þvert á hag neytenda,“ segir Viktor, framkvæmdastjóri Sparibíls.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×