Neytendur

Villandi fram­setning Spari­bíls að tala um „sömu bíla, bara miklu ó­dýrari“

Atli Ísleifsson skrifar
„Sömu bílar bara miklu ódýrari“ stóð enn framan á húsnæði Sparibíls þegar fréttastofa leit við um miðjan dag í gær.
„Sömu bílar bara miklu ódýrari“ stóð enn framan á húsnæði Sparibíls þegar fréttastofa leit við um miðjan dag í gær. Vísir/Vilhelm

Rangar fullyrðingar koma fram í auglýsingum Bonum, sem rekur Sparibíl í Hátúni í Reykjavík, um þá bíla sem félagið selji og eru þær taldar villandi.

Þetta er niðurstaða Neytendastofu en í ákvörðun stofnunarinnar segir að málið hafi varðað almenna fullyrðingu: „Sömu bílar bara miklu ódýrari“ og svo fullyrðinguna um 800 þúsund króna lægra verð á Mitsubishi Outlander PHEV hjá Sparibíl heldur en listaverð, en bent var á að um villandi samanburð væri að ræða við samkeppnisaðila. Að auki kom til skoðunar fullyrðing Sparibíls um fimm ára ábyrgð á ökutækjunum.

Á vef Neytendastofu segir að Sparibíll hafi hafnað því að fullyrðingarnar væru villandi eða andstæðar góðum viðskiptaháttum.

„Til staðfestingar fullyrðingunum var lagður fram verðlisti umboðsaðila bifreiðanna. Þá var tekið fram að allir Mitsubishi Outlander bílar séu í 5 ára verksmiðjuábyrgð og fram komi í þjónustubók bílsins að bíllinn sé í 5 ára ábyrgð fyrstu 24 mánuðina án kílómetratakmarkana og næstu 36 mánuði upp í 100.000 km. Þá sé 8 ára ábyrgð á batteríinu.“

Villandi samanburður

Neytendastofa taldi hins vegar að þótt auglýstur bíll Sparibíls gæti talist staðgönguvara bíls sömu tegundar frá umboðsaðila væri samanburðurinn villandi þar sem ekki hafi verið lögð fram gögn sem sýndu með óyggjandi hætti að auglýstur bíll Sparibíls væri búinn sömu aukahlutum eða aukabúnaði og samanburðarbíll.

„Í ákvörðuninni er um það fjallað að gera verði grein fyrir því með skýrum hætti ef bílarnir væru gæddir ólíkum aukabúnaði. Þá taldi stofnunin ekki hafa verið sýnt fram á að samanburðarverð hafi verið viðeigandi á þeim tíma sem auglýsingarnar voru birtar.

Hvað varðaði auglýsta 5 ára ábyrgð Sparibíls þá taldi stofnunin í ljósi þess að hún var ekki fortakslaus að upplýsingar um almenn skilyrði ábyrgðarinnar skiptu miklu máli fyrir neytendur og það gæti raskað verulega fjárhagslegri hegðun neytenda að þær upplýsingar væru ekki aðgengilegar í auglýsingunum samhliða tilvísun til fimm ára ábyrgðar. Því væri ótvírætt orðalag Sparibíls um 5 ára ábyrgð villandi.“

Mega búast við sektum haldi auglýsingarnar áfram

Í ákvörðunarorðum segir að Sparibíl sé bannað að viðhafa umrædda viðskiptahætti.

Verði ekki farið að banninu megi búast við að tekin verði ákvörðun um sektir á grundvelli laga um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×