Þórsarar stimpla sig inn með sigri á Fylki

Snorri Rafn Hallsson skrifar
Fylkir vs Þór

Í gærkvöldi lauk annarri umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO. Kvöldið hófst á viðureign Fylkis og Þórs. Fylkir léku þar með sinn annan leik í umferðinni eftir að hafa setið hjá í síðustu. Bæði liðin höfðu unnið einn leik og gátu með sigri tyllt sér við hlið toppliða XY og Dusty. Þórsarar höfðu pakkað Vallea hratt og örugglega saman í síðustu umferð á meðan Fylkir þurfti að hafa mikið fyrir því að ráða við Kórdrengi og unnu ekki fyrr en í framlengingu.

Liðin mættust á toppi skýjakljúfs í Vertigo kortinu, korti sem Þórsmönnum líður afar vel í. Það var því pressa á Fylki að halda uppi tempói og gefa ekkert eftir ef þeir vildu sækja sér tvö stig til viðbótar í þessari umferð. Þór hafði betur í hnífalotunni og byrjaði því í vörn (Counter-Terrorists) á meðan Fylkismenn brugðu sér í hlutverk hryðjuverkamannanna. Leikurinn fór brösulega af stað hjá Fylki í sókninni. Fyrsta lota féll Þór í vil eftir örlítil tæknileg vandamál en í annarri lotu kom Fylkir sprengjunni fyrir hratt og örugglega, og það manni fleiri. Fylkir fékk nægan tíma til að staðsetja leikmenn og verja sprengjuna en þegar sprækir Þórsarar mættu á sprengjusvæðið féll allt um sjálft sig. Þór missti ekki mann í slagnum og aftengdi sprengjuna. Lið Þórs var bæði öruggara í aðgerðum sínum og nýttu sprengjur gríðarlega vel til að ná stjórn á leiknum, valda skaða og tefja fyrir Fylkismönnum það sem eftir lifði hálfleiks.

Staða í hálfleik: Fylkir 5 - 10 Þór

Leikurinn snerist örlítið við þegar liðin skiptu um hlutverk. Fylki gekk betur að verjast og loka á tækifæri Þórsara sem þó voru ansi brattir. Munaði þar miklu um Zerq sem var allt í öllu í vörn Fylkis og tókst að klemma nítjándu lotu með tveimur fellum og aftengingu vopnaður engu nema USP-skammbyssu gegn Rean og StebbaC0C0. Zerq átti eftir að ná langflestum fellum fyrir Fylki en eftir að liðin voru jöfn í stöðunni 11-11 spýttu Þórsarar í lófana og sigldu sigrinum heim með góðum opnunum og sterku samspili.

Lokastaða Fylkir 11 - 16 Þór

Þórsarar voru ekki jafn sannfærandi og í fyrsta leik sínum en engu að síður er liðið komið með fullt hús stiga og situr á toppnum með XY og Dusty. Næsta þriðjudag mætir liðið svo Ármanni en liðunum var einmitt spáð þriðja og fjórða sæti í deildinni. Fylkismenn geta verið ánægðir með sína frammistöðu og að hafa veit Þór nokkra mótstöðu en ljóst er að liðið þarf að vinna betur í leikskipulagi sínu og samstilla aðgerðir betur þegar á ríður í bardögum. Næst leikur Fylkir gegn XY föstudaginn 22. Október. Sýnt verður frá leikjunum á Stöð 2 Esport og á Twitch síðu Rafíþróttasamtaka Íslands.


Tengdar fréttir

Fylkir vann Kórdrengi í framlengingu

Leika þurfti 35 lotur til að skera úr um hver hefði betur í leik Fylkis og Kórdrengja í annarri umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO. Fylkir vann að lokum 19-16.

Dusty hafði betur gegn Sögu

Dusty lagði línurnar fyrir aðra umferð Vodafonedeildarinnar í CS:GO þegar liðið vann Sögu Esport 16-10 í stórskemmtilegri viðureign.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira