Lífið

Á­hrifa­valdar mættu skemmti­kröftum í nýjasta þætti af Kviss

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Í nýjasta þætti af spurningaþættinum Kviss mættust þær Sunneva Einarsdóttir og Ástrós Traustadóttir fyrir hönd Fylkis og þeir Steindi Jr. og Dóri Dna fyrir hönd Aftureldingar.
Í nýjasta þætti af spurningaþættinum Kviss mættust þær Sunneva Einarsdóttir og Ástrós Traustadóttir fyrir hönd Fylkis og þeir Steindi Jr. og Dóri Dna fyrir hönd Aftureldingar. Kviss

Í nýjasta þætti af spurningaþættinum Kviss mættust lið Fylkis og Aftureldingar. Lið Fylkis skipa áhrifavaldurinn og hagfræðineminn Sunneva Einarsdóttir og dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir. Lið Aftureldingar samanstendur af skemmtikröftunum Steinda Jr. og Dóra DNA.

Þess má til gamans geta að lið Aftureldingar er það eina sem fékk að snúa aftur úr fyrri seríu. Áhorfendur fengu að kjósa eitt lið sem myndi snúa aftur og má því segja að þeir Steindi og Dóri hafi skipað lið fólksins.

Staðan var 23-20 fyrir Fylki þegar farið var í spurningaliðinn Þrjú hint. Þar fékk Afturelding tækifæri til þess að jafna stöðuna og Fylkir jafnframt tækifæri til þess að tryggja sér sigur. Hér var því um æsispennandi spurningu að ræða.

Spurt var um fyrirbæri. Fyrsta vísbending hljóðaði svo að maður að nafni Paul Vasquez hafi tekið myndband af fyrirbærinu á jörð sinni í Kaliforníu. Myndbandinu deildi hann á YouTube árið 2010.

Dóri DNA hringdi bjöllunni fyrir hönd Aftureldingar og giskaði á að fyrirbærið væri stórfótur. Það var hins vegar ekki rétt og var Steindi Jr. ekki par sáttur við liðsfélaga sinn. 

Næsta vísbending var sú að myndbandið hafi orðið „viral“ og í dag hafi um 50 milljónir manns horft á það. Fyrirbærið væri hins vegar ekki ástæða vinsældanna heldur viðbrögð Vasquez. Hann fékk mikla athygli og heimsótti meðal annars Ísland þar sem hann gerðist sérstakur verndari Menntaskólans við Hraðbraut. 

Ástrós hringdi þá bjöllunni og giskaði á að fyrirbærið væri regnbogi. Það reyndist rétt og þar með tryggði hún Fylki sigur í einvíginu og sæti í 8-liða úrslitum Kviss.


Tengdar fréttir

Bráða­bani réði úr­slitum í fyrsta skipti í sögu Kviss

Annar þáttur spurningaþáttarins Kviss fór fram á laugardaginn. Þar mættust Hamar og Dalvík í 16-liða úrslitum. Úr varð æsispennandi viðureign sem endaði í bráðabana í fyrsta skipti í sögu Kviss, þar sem annað liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum.

Túrtappi tryggði sigur í fyrsta ein­vígi Kviss

Fyrsti þáttur spurningaþáttarins Kviss fór fram á laugardaginn. Þar mættust Tindastóll og Þróttur í stórskemmtilegri viðureign. Lið Tindastóls skipa fjölmiðlamaðurinn og skemmtikrafturinn Auðunn Blöndal og leikkonan Vivian Ólafsdóttir. Lið Þróttar samanstendur af söngkonunni Bríeti og leikaranum Birni Hlyni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×