Sport

Dagskráin í dag: Pepsi Max deildir karla og kvenna, GameTíví og NFL

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Fylkismenn heimsækja Stjörnuna í Pepsi Max deild karla í kvöld.
Fylkismenn heimsækja Stjörnuna í Pepsi Max deild karla í kvöld.

Það er algjörlega pakkað mánudagskvöld framundan á sportrásum Stöðvar 2 í kvöld þegar að átta beinar útsendingar eru á dagskrá.

Dagurinn byrjar ekki fyrr en klukkan 17:50, n þá eru hvorki meira né minna en þrír leikir í Pepsi Max deildunum á dagskrá. Tveir leikir verða sýndir á stod2.is, en það eru viðureignir Leiknis og HK í Pepsi Max deild karla annars vegar, og Þróttar og Þórs/KA í Pepsi Max deild kvenna heinsvegar.

Á sama tíma á Stöð 2 Sport 4 er bein útsending frá Selfossi þar sem að heimakonur taka á móti ÍBV í suðurlandsslag Pepsi Max deildar kvenna.

Klukkan 18:50 er á dagskrá Stöðvar 2 Sport stutt upphitun fyrir leik Stjörnunnar og Fylkis í Pepsi Max deild karla, en tíu mínútum síðar verður skipt beint niður á völl. Að leik loknum verða leikirnir gerðir upp í Pepsi Max Stúkunni.

Klukkan 20:00 er GameTíví á dagsrá á Stöð 2 eSport þar sem að tölvuelikjaáhugamenn landsins geta fylgst með strákunum spila hina ýmsu leiki.

Sinasta útsending dagsins er á slaginu miðnætti þegar að New Orleans Saints mæta Jacksonville Jaguars í NFL deildinni í amerískum fótbolta á Stöð 2 Sport 2.

Upplýsingar um allar beinar útsndingar næstu daga má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×