Innlent

Fólki fæddu 1931 eða fyrr boðið að fá örvunar­skammt

Atli Ísleifsson skrifar
Bólusett verður í Laugardalshöll, en ekki verða sérstaklega send út SMS-skilaboð.
Bólusett verður í Laugardalshöll, en ekki verða sérstaklega send út SMS-skilaboð. Vísir/Vilhelm

Boðið verður upp á örvunarskammt með mRNA bóluefni fyrir fólk sem fætt er 1931 eða fyrr á fimmtudaginn næsta. Bólusett verður í Laugardalshöll, en ekki verða sérstaklega send út SMS-skilaboð.

Frá þessu segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. „Flestir á þessum aldri fengu fyrri bólusetningu í janúar eða febrúar og seinni bólusetningu um miðjan febrúar. Um sex mánuðir þurfa að hafa liðið frá seinni skammti af bóluefni.

SMS boð verða ekki send út. Fólk sem er fætt fyrri hluta árs, janúar til júní, er beðið um að koma milli kl. 10:00 og 11:00. Fólk sem er fætt seinni hluta árs, júlí til desember, er beðið um að koma milli kl. 11:00 og 12:00.

Við minnum á grímuskyldu. Bólusett er í axlarvöðva og í almennu rými. Gott er að vera í stuttermabol innst klæða. Allir þurfa að bíða í um 15 mínútur eftir að bólusetning er gefin,“ segir í tilkynningunni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×