Lífið

Stjörnulífið: Allir slakir að njóta og lifa

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á Instagram.
Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum á Instagram.

Þessa gula og góða gladdi mann og annan í liðinni viku innan- og utanlands og er ljóst að landinn er orðinn nokkuð vanur því að gera gott úr hlutunum.

Þó svo að helstu hátíðir um verslunarmannahelgina hafi verið flautaðar af vegna hertra samkomutakmarkanna þá var ekki annað hægt að sjá en að stjörnurnar hafi fundið leið til að skína, slaka og skemmta sér. 

Sunneva Einars samfélagsmiðlastjarna naut sín vel í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina þar sem hún var stödd með vinahópnum og kærasta sínum Benedikt Bjarnasyni. 

Birgitta Líf birti einnig glæsilega mynd af sér og vinhópnum sem klæddist hvítu og skálaði fyrir vináttunni og lífinu. 

Steindi Jr. og Auðunn Blöndal söknuðu þess að vera ekki á Þjóðhátíð í ár. Þeir skelltu sér þess í stað á Tapasbarinn og birtu að sjálfsögðu mynd. Kapparnir virðast hafa farið alla leið í eftirréttinn og sötrað rauðvín með.

Leikarahjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson efndu til salsasumarspartýs. Þar náðist þessi svakalega hópmynd sem Nína birti á Instagram. Þar má meðal annars sjá Björgólf Thor Björgólfsson og Kristínu Ólafsdóttur, Björn Thors og Unni Ösp Stefánsdóttur, bræðurna Sigurð og Björn Ólafssyni ásamt konum sínum Hildi Hafstein og Helgu Thors. 

Þá voru Símafélagarnir Orri Hauksson og Gunnar Fjalar Helgason í góðum gír ásamt spúsum sínum Selmu Ágústsdóttur og Kristrúnu Kristjánsdóttur. Pétur Blöndal og Anna Sigríður Arnardóttir voru greinilega í góðum gír. 

„Trylltasta partý ársins,“ segir söngkonan Selma Björnsdóttir. Kristín Ólafs bætir við og segir: „Ógleymanlegt.“

Söngdívan Jóhanna Guðrún birti fallega sjálfu um helgina en hún var ein af þeim sem tróð upp í Brekkusöngnum sem var jú með töluvert breyttu sniði þetta árið. 

Guðmundur Guðbrandsson umhverfisráðherra birti mynd af sér á Geysissvæðinu sem hann lét friðlýsa í fyrra. Hann segir gaman að sjá góða hluti gerast. 

Söngkonan Svala Björgvins fagnaði árs sambandsafmæli með kærastanum sínum Kristjáni Einari um helgina. Hún birti mynd af þeim á toppi Helgarfells en þar var einmitt fyrsta stefnumótið.  

Söngvarinn Hreimur birti fallega mynd af sér og dóttur sinni Emblu á leið til Eyja. Hreimur segist afar stoltur af dóttur sinni sem syngur þjóðhátíðarlagið í ár með föður sínum. 

Fyrsta þjóðhátíðin hjá Emblu minni. Vonandi fáum við að syngja saman fyrir framan fullan Herjólfsdal næst. Pabbahjartað að springa úr stolti.

Ásmundur Einar félags- og barnamálaráðherra nýtir síðustu dagana í sumarfríinu til hins ýtrasta, með alvöru græjum. 

Söngkonan Saga B var í þungum þönkum. 

Forsetahjónin eyddu helginni í að njóta íslenskrar náttúru og ferðast innanlands. Þau heimsóttu meðal annars Jökulsárlán. 

Bubbi var slakur heima þessa helgina. 

Ekki væsti þó um kappann enda í afar góðum félagsskap eins og sjá má. 

Talandi um slökun. Camilla Rut baðaði sig í íslenskri náttúru. Sultuslök og sæl í sundfötum.  

Allir slakir - ég mundi eftir sundfötunum í þetta skiptið!

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra virtist einnig mjög slakur í strætó um helgina. Athafnamaðurinn Simmi Vill virtist þó hafa einhverjar áhyggjur og spyr hvort að hann sé próflaus. 

Manúela Ósk sleikir sólina og nýtur lífsins þessa dagana á Tenerife með kærasta sínum Eiði Birgissyni.  

Sólin fer fótbolta- og dansstjörnunni Rúrik Gíslasyni einnig mjög vel. 

Kynfræðingurinn Sigga Dögg birti fallega mynd af sér í bát við strendur Ítalíu þar sem hún nýtur sín án klæða. Hún minnist Druslugöngunnar og deilir hugrenningum sínum um sjálfsást og sjálfsvinnu. 

Athafnakonan og samfélagsmiðlastjarnan Lína Birgitta nýtur sín í París með kærasta sínum Gumma kíró. Parið hefur verið duglegt að heimsækja fínar búðir, listasöfn og njóta sólarinnar í borg ástarinnar. 

Tobba Marínós birti skemmtilega fjölskyldusjálfu. 

Ofurparið Rakel María og Garpur Elísabetarson láta sér ekki nægja að skokka upp að steini. 

Elísabet Gunnars var innipúki í Reykjavík þessa verslunarmannahelgina. Hér sést hún í miklum framkvæmdargír.

Söngvarinn Friðik Ómar þakkar vini sínum Jógvani fyrir samvinnuna og samveruna eftir alls 24 tónleika víðs vegar um landið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×