Alvarleg sprenging á efnavinnslusvæði í Leverkusen Eiður Þór Árnason skrifar 27. júlí 2021 10:26 Svartur reykur færðist yfir iðnaðarsvæðið in Leverkusen. DPA/Mirko Wolf Sprenging var á iðnaðarsvæði fyrir efnavinnslufyrirtæki í þýsku borginni Leverkusen í morgun og steig mikill svartur reykur upp til himins.
Mjög takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um atvikið að svo stöddu og liggur orsök hennar ekki fyrir, að sögn rekstraraðila. Ekki er vitað um slys á fólki. Almannavarnir hafa skilgreint sprenginguna sem „alvarlega ógn“ og biðlað til íbúa um að halda sig innandyra og loka dyrum og gluggum. Þá hefur þeim tilmælum verið beint til fólks utan Leverkusen að forðast svæðið. Lögregla hefur lokað nærliggjandi hraðbrautum og segist ekki hafa upplýsingar um orsök eða stærð sprengingarinnar, að því er fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar. Slökkvilið og mengunarmælibílar hafa verið sendir á vettvang á Chempark-svæðinu sem er staðsett um tuttugu kílómetra norður af Köln. Þýska dagblaðið Koelner Stadt-Anzeiger greinir frá því að sprengingin orðið í sorpbrennslustöð sem tekur við úrgangi frá fyrirtækjum á iðnaðarsvæðinu. Svart reykský færir sig nú nær bæjunum Burscheid og Leichlingen en slökkviliðsmenn hafa verið kallaðir víða að til að reyna ná tökum á eldsvoðanum á svæðinu.
Þýskaland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent Leitin enn ekki borið árangur Erlent Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Erlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Erlent Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður Innlent Fleiri fréttir Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Sjá meira