Samstarf

Lúxushárvörur úr smiðju fullkomnunarsinna

HJ
Hársnyrtimeistarinnn Antonio Axu gerir miklar kröfur og hannaði eigin hárvörulínu. 
Hársnyrtimeistarinnn Antonio Axu gerir miklar kröfur og hannaði eigin hárvörulínu. 

Vísir mælir með lúxushárvörunum frá Antonio Axu.

Antonio Axu hárvörulínan kemur úr smiðju sænska hársnyrtimeistarans Antonio Axu sem er einn helsti hárstílisti fræga fólksins í Svíþjóð. Antonio hóf ferilinn í hársnyrtibransanum aðeins 16 ára. Hann opnaði ungur eigin stofu og varð fljótlega eftirsóttur hársnyrtimeistari. Hann lýsir sjálfum sér sem fullkomnunarsinna og segir að leit hans að hinum fullkomnu hárvörum til að vinna með hafi orðið til þess að hann þróaði sína eigin línu.

„Það sem knýr mig áfram er gífurleg ástríða fyrir handverki og faglegum vinnubrögðum. Að geta sett af stað mína eigin hárgreiðslulínu út frá reynslu minni og sérþekkingu er eitt stærsta skref sem ég hef tekið á mínum ferli,“ segir Antonio Axu. Innblásturinn sækir hann í daglegt líf á stofunni og í samtali við viðskiptavini sínaum væntingar þeirra og þarfir. „Hönnun og litir náttúrunnar eru einnig mikill innblástur. Ég fæ innblástur frá öllu því sem er fallegt og merkilegt,“ segir Antonio Axu.

Antonio Axu vörurnar henta öllum hárgerðum en við þróun línunnar var sérstaklega horft til þess að byggja upp fíngert hár.

Antonio Axu vörulínan er framleidd í Svíþjóð. Hún inniheldur sjampó og hárnæringu fyrir allar gerðir hárs auk sérstakra vara sem næra hársvörðinn og byggja upp hárið. Þá inniheldur línan breytt úrval mótunarvara. Antonio Axu vörurnar henta öllum hárgerðum en við þróun línunnar var sérstaklega horft til þess að byggja upp fíngert hár.

Línan inniheldur einnig áhrifaríkar vörur gegn flösu og viðkvæmum hársvörð. 

Scalp vörurnar frá Antonio Axu  njóta mikilla vinsælda.

Scalp Care sjampóið fer mjúkum höndum um hárið og hreinsar það án þess að erta hársvörðinn. Sjampóið vinnur gegn kláða og þurrki svo hársvörðurinn flagnar síður og hárið verður flauelsmjúkt og skínandi. Sjampóið inniheldur meðal annars ensím úr granateplum og piparmyntu sem kælir og frískar hársvörðinn.

Scalp Treatment er róandi serum sem kælir þurran hársvörðinn, gefur mikinn raka og dregur sýnilega úr flösu. Serumið inniheldur meðal annars bambus og lótusblóm og hyaluronic sýru.

Antonio Axu lúxushárvörurnar fást í Hagkaup og Lyf og Heilsu.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×