Erlent

Tilkynna fyrstu vinningshafa bóluefnalottósins „Vax-a-Million“

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ríkisstjórinn Mike DeWine ásamt styrkþeganum Joseph Costello.
Ríkisstjórinn Mike DeWine ásamt styrkþeganum Joseph Costello.

Yfirvöld í Ohio í Bandaríkjunum hafa greint frá nöfnum fyrstu vinningshafana í bóluefnalottóinu Vax-a-Million en um er að ræða átak til að fá sem flesta íbúa ríkisins til að þiggja bólusetningu.

Abbigail Bugenske, sem býr í einu úthverfa Cincinnati, hlaut fyrsta vinning átaksins; eina milljón dala, eða 121 milljón krónur. Þá vann ungmennið Joseph Costello skólastyrk.

Tilkynnt var um uppátækið fyrr í þessum mánuði, í kjölfar þess að verulega fór að hægja á bólusetningum. Allir þeir sem hafa þegið bólusetningu geta skráð sig til leiks en dregið verður í lottóinu að minnsta kosti fjórum sinnum í viðbót.

Samkvæmt BBC hafa 2,7 milljónir skráð sig í lottóið til að freista þess að vinna milljón Bandaríkjadala og fleiri en 100 þúsund hafa skráð sig í námsstyrkjalottóið, þar sem vinningurinn er háskólanám greitt að fullu af ríkinu.

Ekki eru allir á eitt sáttir um ágæti lotterísins en gagnrýnendur telja meðal annars að fjármununum hefði heldur átt að verja beint í þágu baráttunnar gegn kórónuveirunni.

Ríkisstjórinn Mike DeWine segir árangurinn þó ótvíræðan; frá því að tilkynnt var um lotteríið hafði bólusetningum fjölgað um 94 prósent meðal 16 og 17 ára, um 46 prósent meðal 18 og 19 ára og um 55 prósent meðal 20 til 49 ára.

Önnur ríki horfa nú til þess að feta í fótspor Ohio, meðal annarra New York.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×