Kveðst hafa glatað 3,2 milljarða vinningsmiða í þvotti Atli Ísleifsson skrifar 14. maí 2021 13:11 Vinningsupphæðin nam 26 milljónum Bandaríkjadala, um 3,2 milljarða króna. Myndin er úr safni. EPA Kona í Bandaríkjunum sem fullyrðir að hún hafi keypt lottómiða með röð sem skilaði 26 milljóna dala vinningi, segir að hún hafi glatað miðanum eftir að hafa skilið hann eftir í buxnavasa og sett buxurnar í þvott. Vinningsupphæðin samsvarar um 3,2 milljörðum íslenskra króna.
Konan tók þátt í SuperLotto í Kaliforníu og keypti miða sinn í matvöruverslun í Norwalk, úthverfi Los Angeles í nóvember síðastliðinn. BBC segir frá því að myndir úr öryggismyndavél verslunarinnar sýni að konan hafi sannarlega keypt lottómiða í versluninni, en frestur til að sækja vinninginn rann út í gær, hálfu ári eftir útdráttinn. Haft er eftir starfsmanni verslunarinnar í Norwalk þar sem vinningsmiðinn var keyptur, að konan hafi heimsótt verslunina á miðvikudaginn og sagst vera hinn eini sanni vinningshafi. Konan hafi týnt miðanum og óttaðist að hún hafi fyrir mistök sett hann í þvott og miðinn þannig eyðst. Talsmaður lottósins segir að myndskeið úr öryggismyndavélinni væri ekki nóg til að sanna að konan væri handhafi vinningsmiðans. Forsvarsmenn lottósins væru þó að rannsaka myndefnið nánar. Fari svo að enginn fái vinningsupphæðina verður henni dreift milli skóla í Kaliforníu. Vinningstölurnar í umræddu lottói voru 23, 36, 12, 31, 13 og svo ofurtalan 10.
Bandaríkin Fjárhættuspil Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Fleiri fréttir Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Sjá meira