Körfubolti

Russell Westbrook var með 21 frákast og 24 stoðsendingar  í nótt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Russell Westbrook skilaði rosalegri þrennu í sigri Washington Wizards í NBA deildinni í nótt.
Russell Westbrook skilaði rosalegri þrennu í sigri Washington Wizards í NBA deildinni í nótt. AP/Alex Brandon

Russell Westbrook bauð upp á sögulegar tröllatölur í sigri Washington Wizards í NBA-deildinni í körfubolta í nótt, Steph Curry átti enn einn stórleikinn og Los Angeles Lakers vann loksins og það án LeBrons James.

Russell Westbrook skoraði kannski bara 14 stig í 154-141 sigri Washington Wizards á Indiana Pacers en kappinn var með 21 fráköst og 24 stoðsendingar. Hann varð fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA sem hefur náð fleiri en einum leik með 20 fráköst og 20 stoðsendingar. Hann komst þar fram úr Wilt Chamberlain sem er sá ein sem hefur náð því einu sinni.

Þetta var 32. þrenna Westbrook á tímabilinu og 178 þrennan hans á NBA-ferlinum. Russell Westbrook vantar nú aðeins þrjár til að jafna metið hans Oscars Robertson yfir flestar þrennur í sögu NBA-deildarinnar.

Það er ekki nóg með það því þessar risatölur tryggja það að Russell Westbrook verður með þrennu að meðaltali á tímabilinu og er þetta fjórða leiktíðin sem hann nær því. Aðeins einn annar leikmaður hefur náð því og það bara einu sinni. Robertson var með þrennu að meðaltali tímabilið 1961-62.

„Leikstjórnendur gera bara ekki það sem hann gerir. Hann er ekki venjulegur og þeir eru ekki byggðir svona,“ sagði þjálfari hans Scott Brooks. „Það er kannski einhver sem skýtur boltanum betur og það eru einhverjir sem gera einhverja hluti betur en hann. Það er hins vegar enginn í sögu leiksins sem getur fyllt út tölfræðiblaðið eins og hann,“ sagði Brooks.

„Ég sagði alltaf að hann muni líklega enda sem þriðji besti leikstjórnandi sögunnar en ég held að hann sé kominn fram úr einum. Hann mun líklega enda sem sá annar besti og númer eitt er auðvitað Magic [Johnson]. Hann er ekki metinn af verðleikum,“ sagði Scott Brooks um Russell Westbrook.

Sigurinn þýðir að Washington Wizards liðið er aðeins einum og hálfum sigri á eftir Indiana Pacers en liðið eru í 9. og 10. sæti í Austurdeildinni. Liðin í sjöunda til tíunda sæti fara í umspilið um sætið í úrslitakeppninni.

Stephen Curry er ekkert að kólna mikið niður en hann var með 41 stig þegar Golden State Warriors vann 123-108 útisigur á New Orleans Pelicans. Félagi hans Draymond Green bauð líka upp á þrennu en hann var með 10 stig, 15 stoðsendingar og 13 fráköst. Þetta var mikilvægur sigur í baráttu Golden State Warriors fyrir sæti í úrslitakeppninni.

Andrew Wiggins skoraði 26 stig fyrir Golden State en Zion Williamson var með 32 stig fyrir heimamenn og Brandon Ingram skoraði 19 stig. Pelicans þurfti á sigri að halda en var komið 20 stigum undir í fyrsta leikhlutanum þar sem umræddur Stephen Curry skoraði 17 stig.

Golden State er í tíunda og síðasta sætinu sem gefur sæti í umspilinu í Vesturdeildinni og náði með þessum sigri fjögurra sigra forskot á New Orleans Pelicans þegar aðeins sjö leikir eru eftir.

Anthony Davis skoraði 25 stig þegar Los Angeles Lakers endaði þriggja leikja taphrinu með 93-89 sigri á Denver Nuggets. LeBron James var hvíldur í leiknum en Lakers hafði tapað tveimur fyrstu leikjum sínum eftir að hann kom til baka.

Talen Horton-Tucker innsiglaði sigur Lakers með körfu 15,1 sekúndu fyrir leikslok en Nuggets hafði unnið upp forskot Lakers á lokamínútunum. Nikola Jokic skoraði 32 stig fyrir Denver.

Úrslitin í NBA-deildinni í körfubolta í nótt:

  • Washington Wizards - Indiana Pacers 154-141
  • Detriot Pistons - Orlando Magic 112-119
  • New Orleans Pelicans - Golden State Warriors 108-123
  • Los Angeles Lakers - Denver Nuggets 93-89
  • Atlanta Hawks - Portland Trail Blazers 123-114
  • Chicago Bulls - Philadelphia 76ers 94-106
  • Memphis Grizzlies - New York Knicks 104-118
  • Utah Jazz - San Antonio Spurs 110-99
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×