Albumm

Sigurður Guðmundsson gefur út Kappróður

Ritstjórn Albúmm.is skrifar
Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður.
Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður.

Tónlistarmaðurinn Sigurður Guðmundsson gefur út lagið Kappróður sem er fyrsta smáskífan af samnefndri sólóplötu hans sem kemur út í byrjun sumars á vegum Record Records.  

Sigurður hefur komið víða við í tónlistarheiminum og er meðal annars meðlimur í hljómsveitunum Góss, Baggalúti og Hjálmum auk þess að vera landsmönnum vel kunnugur fyrir tónlistina sem hann hefur gefið út með Memfismafíunni og Sigríði Thorlacius.

Kappróður er fyrsta lagið sem sleppur út af væntanlegri samnefndri hljómplötu og lýsir Sigurður laginu sem hálfgerðri sjálfsævisögu með skálduðu ívafi: 

„Persónur sem lagið hverfist um eru eiginlega bara sögupersónur en eiga sér vissulega hliðstæður, eða í það minnsta skírskotanir í alvöru fólk. Ljóðið fjallar eiginlega um mis-velheppnaðar tilraunir til t.d. samskipta, athafna og jafnvel söngs. Og um hverfulleika daglegra hluta – fegurð ýsunnar, almenna skynsemi og kappróður okkar mannanna“ – segir Sigurður.

Sem fyrr segir er von á breiðskífunni Kappróður í byrjun sumars. Lög og textar plötunnar eru öll samin af Sigurði sem fékk einvalalið tónlistarmanna með sér við gerð hennar. Upptökur fóru að mestu leyti fram í Hljóðrita undir styrkri stjórn Guðmundar Kristins Jónssonar sem einnig sá um hljóðblöndun og masteringu ásamt Sigurði sjálfum. 


Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í albumm@albumm.is.








×