Innlent

Lögregla lýsir eftir Elvis Valca

Atli Ísleifsson skrifar
Elvis Valca.
Elvis Valca. Lögreglan

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir Elvis Valca, 27 ára.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að þeir sem geti veitt upplýsingar um ferðir Valca, eða viti hvar hann sé að finna, séu vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 112.

Upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×