Lífið

„Ég hef grætt mikið á því að spila alls konar tón­list“

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir og Frosti Logason skrifa
Kári Egilsson hefur stundað píanónám frá unga aldri og stefnir nú á framhaldsnám í Bandaríkjunum.
Kári Egilsson hefur stundað píanónám frá unga aldri og stefnir nú á framhaldsnám í Bandaríkjunum. Stöð 2

Kári Egilsson er ungur Reykvíkingur sem margir telja eina björtustu vonina í tónlistarlífi Íslendinga. Hann hélt um daginn stúdentsprófstónleika sína frá rytmískri deild Menntaskólans í tónlist þar sem flutningur Kára á eigin verkum í bland við þekkta djassslagara reyndist bæði fumlaus og heillandi.

Kári mun síðar í maí einnig ljúka prófi sínu í klassískum píanóleik frá sama skóla en hann hefur samhliða lagt stund á báðar greinar undanfarin ár. Það má segja að tónlistin nánast velli upp úr Kára en hann byrjaði ungur að spila og semja eigið efni.

„Ég byrjaði sjö ára í píanónámi en svo fór ég að fikta á píanóið sem við áttum heima, það hljómaði kannski ekki mjög vel þá, en svo fór ég að læra klassík í Do Re Mí skólanum hjá Birnu Bjarnadóttur, hún hjálpaði mér mikið,“ segir Kári.

„Svo fór ég að skoða djass þegar ég var um tíu ára gamall og fór þá til Eyþórs Gunnarssonar,“ segir Kári.

Kári segir áhugann á tónlistinni líklega hafa byrjað þegar hann fór að fikta við píanóið heima, sem mamma hans fékk í fermingargjöf á sínum tíma. Hann segist svo hafa drukkið í sig tónlistina sem var til á heimilinu.

Sjónvarpsferill ekki hans svið

Pabbi Kára er hinn landsþekkti blaða- og sjónvarpsmaður Egill Helgason og móðir hans er Sigurveig Káradóttir veitingakona.

Þið pabbi þinn eru frekar líkir í útliti en eruð þið líkir að eðlisfari líka?

„Að sumu leiti en ekki öllu. Hann er kannski meira félagsblóm en ég og ég er meira fyrir það að sökkva mér djúpt í eitthvað eitt en hann hefur breiða þekkingu á mörgum sviðum,“ segir Kári.

Hann segist ekki halda að hann gæti orðið sjónvarpsmaður eins og pabbi hans.

„Ég held að greinin mín sé ekki þar.“

Stefnir á framhaldsnám í Bandaríkjunum

Kári segist sjálfur vera alæta á tónlist, hann hlustar á jass, rokk, popp og klassík og segir erfitt að benda á eina tónlistarstefnu sem hann fílar umfram aðra. Hann segir þó að hann hafi sjálfur mest gaman af því að skapa og því sé djassinn nokkurskonar ástríða hans.

„Ég hef grætt mikið úr klassísku tónlistinni en ég held að ég sé betri í skapandi hliðinni. En ég kann mikið að meta þennan skóla fyrir að geta sameinað þessar greinar,“ segir Kári.

Kári stefnir á að gera tónlistina að starfsferli.Stöð 2

Kári hyggur á framhaldsnám í píanóleik í Bandaríkjunum eftir að Covid sleppir en hann hefur dvalið talsvert þar og sótt fjölda námskeiða hjá hinum virta tónlistarháskóla Berklee í Massachusets.

„Ég hef farið þrisvar til Berklee í Boston. Ég hef mikla reynslu af skólanum, þar eru góðir kennarar þannig að ég býst við að hann verði alla vega á listanum. Kannski einn af bestu rytmísku tónlistarskólum í heimi. En ég mun örugglega sækja um fleiri skóla líka,“ segir Kári.

Hann stefnir á í framhaldsnáminu að leggja áherslu á það að skapa tónlist.

„Ég hef grætt mikið á því að spila alls konar tónlist, bæði tæknilega séð og bara kynnst fullt af fallegri tónlist. En ástríða mín er meira í að skapa og að spila en að spila verk eftir aðra,“ segir Kári.

Spilar í marga klukkutíma á dag

Þeir sem þekkja Kára segja mjög erfitt að fá hann til að gera hluti sem hann hefur ekki áhuga á. Hann hefur annars mikla einbeitingagáfu og getur til að mynda unnið að tónlistinni í marga klukkutíma á hverjum degi. En hvað æfir Kári oft á dag?

„Tja, pabbi myndi segja ekki nógu mikið. Nei ég segi svona,“ segir Kári í gríni.

„Það fer nú eftir því. Að æfa ákveðin verk er kannski klukkutími en að spila og semja bæði í djassinum og öllum stílum þá er mjög stór deginum í tónlist. Margir klukkutímar. Ég mætti kannski vera duglegri við að æfa skala,“ segir Kári.

Um tíma lagði Kári svolitla áherslu á skákina og stúderaði hana í bak og fyrir en missti svo áhugan á henni og sneri sér að aftur heilshugar að tónlistinni. Hann hefur þó einnig gaman af kvikmyndum og sjónvarpi og leyfir sér stundum að glápa á góðar bíómyndir á milli æfinga.

Kári spilar reglulega á sviði og segist ekki verða stressaður áður en hann stígur á stokk.Stöð 2

„Ég hef nú alltaf haft mest gaman af gamanmyndum og gamanþáttum frá níunda áratugnum og ég elst upp á 80‘s gamanmyndum,“ segir Kári.

Verður ekki stressaður áður en hann stígur á svið

Fyrir tveimur árum þegar Kári var einungis sextán ára gamall hlaut hann hvatningarverðlaun ASCAP sem eru samtök tónskálda í Bandaríkjunum en þar var Kári heiðraður sem upprennandi tónskáld og lagahöfundur. 

Verðlaunin, sem kennd voru við lagahöfundinn Desmond Child, voru veitt við hátíðlega athöfn í Lincoln Center í New York þar sem Kári lék frumsamið lag fyrir framan fullan sal af áhrifafólki í tónlistarbransanum vestanhafs. En Kári segist hafa jafn gaman að því að spila á tónleikum eins og að sitja heima og semja tónlist.

Kári byrjaði að fikta á píanóið þegar hann var mjög ungur.Stöð 2

„Það er mikið adrenalín sem kemur af því að spila á tónleikum fyrir framan fólk. Það er líka mjög gefandi að semja eitthvað sem maður er ánægður með, það er mjög góð tilfinning,“ segir Kári.

Hann segist ekki verða stressaður áður en hann fer á svið.

„Nei, í rauninni ekki. Ég hef auðvitað spilað frá því ég var lítill þannig að ég hef vanist því.“

„Ég er ekki nógu góður í neinu öðru til þess að geta gert það að neinum ferli“

Og Kári segist nokkuð viss um að tónlistin verði hans aðal atvinnugrein í framtíðinni.

„Það er í rauninni ekkert annað sem kemur til greina. Ég er ekki nógu góður í neinu öðru til þess að geta gert það að neinum ferli. Og ég hef bara brennandi áhuga á því þannig að það er engin ástæða til að gera neitt annað,“ segir Kári.

Hann segist þó ekki vera búinn að sjá framtíðina fyrir sér nákvæmlega enda margt sem komi til greina.

„Að semja, flytja, ég er ekki alveg viss, útsetja. Bara fjölbreytt,“ segir Kári.

Hann gæti jafnvel séð fyrir sér að verða kvikmyndatónskáld. Þá segir hann að sér þyki óþægilegt þegar fólk tali um hann sem undrabarn í tónlist.

„Ég kann samt að meta það líka, að fá hrós,“ segir Kári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×