Körfubolti

Sigurganga Utah Jazz heldur áfram og meistararnir aftur á sigurbraut

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Zion og Jokic fóru mikinn.
Zion og Jokic fóru mikinn. vísir/Getty

Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt þar sem meistarar Los Angeles Lakers komust aftur á sigurbraut og Utah Jazz hélt áfram að styrkja stöðu sína á toppi Vesturdeildarinnar.

Montrezl Harrell átti góða innkomu af bekknum hjá Lakers og lauk leik sem stigahæsti maður vallarins með 24 stig auk þess að taka tíu fráköst en meistaraliðið leikur án sinna skærustu stjarna, LeBron James og Anthony Davis, þessa dagana og hafði tapað fjórum leikjum í röð þegar Lakers mætti Cleveland Cavaliers í nótt.

Boston Celtics gerði sér lítið fyrir og lagði Milwaukee Bucks á útivelli, 114-122, þar sem Jayson Tatum fór mikinn og gerði 34 stig en Giannis Antetokounmpo var atkvæðamestur heimamanna með fjórtán stig.

Það var alvöru tröllaslagur í New Orleans þar sem Nikola Jokic og Zion Williamson tókust á í viðureign Pelicans og Denver Nuggets. Þeir fóru báðir mikinn en Zion gerði 39 stig og tók tíu fráköst á meðan Jokic gerði 37 stig og gaf níu stoðsendingar.

Denver vann leikinn með fimm stiga mun, 108-113.

Í Detroit var James Harden allt í öllu þegar hann mætti með lið sitt, Brooklyn Nets, í heimsókn til Pistons. Harden skoraði 44 stig, tók fjórtán fráköst og gaf átta stoðsendingar þegar Nets vann sigur í hörkuleik, 111-113

Í Dallas réðu Evrópumennirnir ríkjum þegar Indiana Pacers kom í heimsókn. Lettinn Kristaps Porzingis var stigahæstur heimamanna með 31 stig auk þess að rífa niður átján fráköst en Litháinn Domantas Sabonis skoraði 22 stig og tók fimmtán fráköst fyrir gestina sem unnu leikinn örugglega.

Þá vann Minnesota Timberwolves magnaðan sigur á Houston Rockets þar sem heimamenn gerðu síðustu 22 stig leiksins. Á sama tíma fær ekkert stöðvað Utah Jazz um þessar mundir en liðið vann sinn fjórða leik í röð þegar Memphis Grizzlies heimsótti Utah.

Úrslit næturinnar

Detroit Pistons - Brooklyn Nets 111-113

Toronto Raptors - Phoenix Suns 100-104

Milwaukee Bucks - Boston Celtics 114-122

Charlotte Hornets - Miami Heat 110-105

Orlando Magic - Portland Trail Blazers 105-112

Minnesota Timberwolves - Houston Rockets 107-101

New Orleans Pelicans - Denver Nuggets 108-113

Dallas Mavericks - Indiana Pacers 94-109

Utah Jazz - Memphis Grizzlies 117-114

Golden State Warriors - Atlanta Hawks 108-124

Los Angeles Lakers - Cleveland Cavaliers 100-86


NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×