Viðskipti innlent

Varar við nets­vindli

Atli Ísleifsson skrifar
Ekkert lát virðist vera á netsvindlinu.
Ekkert lát virðist vera á netsvindlinu. Vísir/Vilhelm

Pósturinn hefur aftur varað við að óprúttnir aðilar séu að senda tölvupósta í nafni Póstsins í þeim tilgangi að komast yfir kortaupplýsingar.

Í tilkynningu frá Póstinum segir að þetta hafi verið algengt síðasta árið og að ekkert lát virðist vera á þessu.

„Pósturinn vill árétta að það er mikilvægt að smella ekki á hlekki sem fylgja þessum póstum og alls ekki ætti að gefa upp persónulega upplýsingar eða kortanúmer.

Mikilvægt er að fullvissa sig um að sending sé raunveruleg. Sendingarnúmer Póstinum eru 13 stafir, þar af tveir bókstafir fremst og tveir aftast með talnarunu á milli en margir svindlpóstar innihalda einmitt slík númer þannig það er enn mikilvægara að skoða vel.

 Til að fullvissa sig um að sending sé í kerfi Póstsins er hægt að fara á heimasíðu fyrirtækisins, smella á „Finna sendingu“ og leita þar að sendingarnúmeri eða skrá sig inn á www.minn.postur.is,“ segir í tilkynningunni.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×