Skoðun

Við þurfum Rann­sóknar­skýrslu heimilanna

Ólafur Ísleifsson skrifar

Í liðinni viku var rædd á Alþingi skýrsla um aðgerðir í stjórnsýslu samkvæmt ábendingum í rannsóknarskýrslum um hrunið. Er gagn að slíkri úttekt.

Eftirleikur hrunsins sýnist hálfu verri en hrunið sjálft. Hrunið fólst í falli banka, verðfalli hlutabréfa, stórtjóni fyrir eigendur hlutabréfa. Efnahagslífið var í uppnámi. Verðbólgan rauk upp úr öllu valdi. Fjölskyldur og heimili landsmanna voru grátt leikin. Loforðið um skjaldborg um heimilin var ekki efnt. Á ábyrgð stjórnvalda var gerð aðför að heimilum landsmanna ólík því sem sést hefur hér eða annars staðar, fyrr eða síðar.

Tugþúsundir hraktar af heimilum sínum

Staðfest var með upplýsingum dómsmálaráðherra í svari við fyrirspurn frá mér 2018 að á tíunda þúsund fasteignir einstaklinga hafi verið seldar nauðungarsölu árin 2008–2017. Í ljósi þess að tölur afmarkast við nauðungarsölur sýnist óhætt að álykta að á annan tug þúsunda fjölskyldna hafi misst heimili sitt í eftirleik hrunsins. Foreldrar máttu þúsundum saman leiða börn sín sér við hönd út af heimilunum með öllu því raski, angist og þjáningu sem slíku fylgir. Svona snerti eftirleikurinn tugi þúsunda Íslendinga.

Sú spurning vaknar hvort annað eins rask á högum almennra borgara gæti hafa gerst í nokkru öðru landi nema eftir stórfelldar náttúruhamfarir eða styrjaldarátök. Þessar skýringar eiga ekki við en við höfum verðtrygginguna.

Rannsóknarskýrsla heimilanna

Glöggt finnst sú reiði og gremja sem undir býr í íslensku samfélagi vegna þessarar reynslu þótt bætt hafi verið úr skák með leiðréttingunni svonefndu í tíð ríkisstjórnarinnar sem við tók 2013 undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Fullt tilefni er til að gerð verði úttekt á þessum atburðum, húsnæðismissi tugþúsunda Íslendinga sem varpað var út á götu, mat á aðgerðum sem gripið var til og mat á öðrum kostum sem kunna að hafa verið fyrir hendi. Eftir slíkri skýrslu hefur verið kallað af hálfu Hagsmunasamtaka heimilanna, Rannsóknarskýrslu heimilanna, og rökstutt er með svofelldum hætti af þeirra hálfu:

„Rannsóknarskýrsla heimilanna er nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að gera upp við hrunið og leitast við að græða þau sár sem það skildi eftir sig, að því marki sem kostur er. Án slíkrar rannsóknar og réttmætra viðbragða við niðurstöðum hennar, er hin raunverulega staða fjármálakerfisins óvissu háð því ekki eru öll kurl komin til grafar. Sem dæmi eru enn að koma upp mál þar sem lánastofnanir hafa orðið uppvísar að því að hlunnfara viðskiptavini og þurft að endurgreiða háar fjárhæðir.“

Miðflokkurinn vil bregðast við ákalli Hagsmunasamtakanna og mun á næstunni leggja fram skýrslubeiðni þessa efnis, Rannsóknarskýrslu heimilanna.

Aðgerðir til að verja heimilin

Fjölmörg mál til að bæta hag heimila með aukinni réttarvernd gætu þurft að bíða þess að þingstyrkur aukist við slík sjónarmið. Erfitt er að álykta með öðrum hætti í ljósi reynslu höfundar sem ítrekað hefur flutt á Alþingi í góðu samstarfi við Hagsmunasamtök heimilanna frumvörp og þingsályktunartillögur. Nefna má lyklafrumvarp, frumvarp um vexti og verðtryggingu, frumvarp um breytingu á innheimtulögum og þingsályktunartillögu um umgjörð vanskilaskrár.

Lyklafrumvarp

Markmið frumvarpsins er að stuðla að vandaðri lánastarfsemi með því að færa skuldurum að fasteignalánum í hendur þann möguleika að láta af hendi hina veðsettu fasteign að baki láninu og ganga skuldlausir frá borði ef engin önnur úræði finnast. Frumvarpið er mikilvægur liður í því að dreifa áhættu í fasteignalánaviðskiptum. Sé örvænt um að önnur úrræði dugi, þar á meðal samningaleið, á fólk þann rétt að skila lyklunum og ganga út án eftirmála.

Tangarsókn gegn verðtryggingunni

Frumvarp höf­undar um verð­trygg­ð íbúðalán felur í sér fjórar meg­in­breyt­ing­ar: Fyrst ber að telja að taka hús­næð­islið­inn úr vísi­töl­unni. Í annan stað eru áhrif óbeinna skatta tekin út svo að hækk­anir á áfengi, tóbaki, bens­ín­gjöldum og kolefn­is­skatti leiði ekki til hækk­unar hús­næð­is­lána og þyngri greiðslu­byrði. Í þriðja lagi er eitr­aði kok­kteill­inn svo­nefndi tek­inn út, það er verð­tryggð jafn­greiðslu­lán til 40 ára sem hafa þann eiginleika að eftir skilvísar greiðslur í 20 ár hefur höfuðstóll ekki lækkað um svo mikið sem eina krónu. Í fjórða lagi gerir frum­varpið ráð fyrir að vextir á verð­tryggðum lánum fari ekki upp fyrir 2% og styðst sú tala við við­ur­kennd við­mið um aukn­ingu á fram­leiðni og hag­vöxt til langs tíma. Frumvarpið felur í sér tangarsókn gegn verðtryggingunni úr öllum fjórum höfuðáttum.

Innheimtumenn starfi undir eftirliti

Frumvarpi um breytingu á innheimtulögum er ætlað að koma í veg fyrir að nokkur maður þurfi að þola innheimtuaðgerðir af hálfu aðila sem ganga um eftirlitslausir. Gildandi fyrirkomulag felur í sér glufur þannig að óvissa ríkir um hvort Fjármálaeftirliti eða Lögmannafélaginu sé ætlað sinna eftirliti með tilteknum aðilum. Í reynd hefur hvorugur aðilinn eftirlit.

Auknar kröfur um vanskilaskrá og lánshæfismat

Nýlegri þingsályktunartillögu er ætlað að stuðla að bættri umgjörð lánshæfismats og vanskilaskrár þannig að óvandaðir aðilar geti ekki misnotað kerfið til að varpa fólki fyrir þau björg sem það að lenda á vanskilaskrá felur í sér í fjárhagslegu tilliti. Ógnanir og hótanir smálánafyrirtækja eru nefnd í þessu sambandi.

Verk að vinna

Við höfum verk að vinna við að auka neytendavernd á fjármálamarkaði og verja þannig heimili landsmanna.

Hvar í flokki sem við stöndum hljótum við að sameinast um stöðu heimilisins. Heimilið er griðastaður fjölskyldunnar. Heimilið er friðheilagt.

Höfundur er alþingismaður Miðflokksins. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×