Hagnaður í fyrra nam 95 milljónum króna 23. maí 2012 06:00 Rannveig Gunnarsdóttir
Þótt Lyfjastofnun hafi farið fram úr fjárheimildum þá glímir stofnunin ekki við fjárhagsvanda, segir Rannveig Guðmundsdóttir, forstjóri Lyfjastofnunar. Ríkisendurskoðun sendi í byrjun vikunnar frá sér skýrslu þar sem sagt var áhyggjuefni hversu illa gengi að halda stofnuninni innan ramma fjárlaga. „Stofnunin er nær alfarið rekin á sjálfsaflafé og fær ekki framlag úr ríkissjóði, en af því að við erum A-hluta stofnun þá eru tekjur okkar skilgreindar sem ríkistekjur,“ bendir Rannveig á. Rannveig segir mjög erfitt að áætla tekjur stofnunarinnar á hverju ári því þær byggist að stórum hluta á fjölda umsókna sem lyfjafyrirtæki sendi stofnuninni og greiði gjald fyrir. Þannig geti tekjur og umsvif farið út fyrir þann ramma sem Lyfjastofnun er settur í fjárlögum. Lögbundnar skyldur stofnunarinnar og ákvæði fjárlaga rekist á. „Hallinn er því bara í bókunum. Í reynd var stofnunin 95 milljónir króna í plús um síðustu áramót.“ Að mati Rannveigar væri hægt að leiðrétta fjárheimildir stofnunarinnar í fjáraukalögum á ári hverju, en skynsamlegasta leiðin væri hins vegar ákveðinn aðskilnaður í rekstri stofnunarinnar. Fjárlög gætu þannig sagt til um markaðar tekjur til eftirlits og stjórnsýsluverkefna sem hingað til hafi ekki fylgt fjárframlag. „Síðan mætti mögulega gera þjónustusamning um önnur verkefni.“ - óká
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Sjá meira