Innlent

Sinubruni á Kjalarnesi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Slökkviliðsmenn sjást hér berja niður eldinn sem kviknaði í sinunni á Kjalarnesi í dag.
Slökkviliðsmenn sjást hér berja niður eldinn sem kviknaði í sinunni á Kjalarnesi í dag. Vísir/Vilhelm

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því að slökkva sinueld sem kviknaði á suðaustur við Saltvík á Kjalarnesi á þriðja tímanum í dag.

Útkallið barst klukkan 14:40 og voru slökkviliðsmenn að komast á vettvang þegar Vísir náði tali af varðstjóra upp úr klukkan 15:30. Erfitt er að komast að svæðinu þar sem sinan brennur, til að mynda ekki hægt að komast með slökkvibílana.

Erfitt var að komast á vettvang brunans þar sem slökkvibílar komust ekki að.Vísir/Vilhelm

Bílunum hefur verið lagt við meðferðarheimilið Vík. Þaðan er labbað á vettvang en einnig farið á sexhjóli með lítinn vatnstank sem notaður er til þess að bleyta í en annars er þetta handavinna við að berja eldinn niður með klöppum að sögn varðstjóra.

Aðspurður hvort þetta sé mikill eldur segir hann að þetta séu um 200 metra langar tungur. Engin hætta er á að eldurinn teygi sig eitthvað í byggð.

Alls eru sex manns við vinnu á vettvangi, fjórir frá slökkviliðsstöðinni í Mosfellsbæ og tveir úr viðbragðsliði slökkviliðsins á Kjalarnesi.

Hér fyrir neðan má sjá fleiri myndir af vettvangi brunans.

Eldurinn er barinn niður með svokölluðum klöppum.Vísir/Vilhelm
Mikinn reyk leggur frá sinunni sem brennur.Vísir/Vilhelm
Slökkviliðsmaður við störf á vettvangi.Vísir/Vilhlem
Sviðin jörð eftir sinubrunann.Vísir/Vilhelm


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×