Fjórtán ára stelpa kýld á "unglingaballi" KMF Jóhannes Stefánsson skrifar 10. júní 2013 17:16 Stelpan var kýld af ölvuðum manni á KMF um helgina. Mynd/úr einkasafni
Fjórtán ára stelpa var kýld í Reykjaneshöllinni á laugardaginn á Keflavík Music Festival með þeim afleiðingum að hún vankaðist, hlaut áverka í andliti, heilahristing og mikla tognun á hálsi þannig að hún þurfti að klæðast hálskraga. Stelpan þarf að gangast undir rannsókn hjá taugasérfræðingi til að kanna hvert eðli áverkanna er. Stelpan var á skemmtun sem auglýst hafði verið fyrir unglinga á aldrinum 13 - 14 ára en opinn bar var á skemmtuninni og mikið um drykkju. Til stóð að stelpan myndi fara utan í keppnisferð í fótbolta á næstu dögum en útséð er að ekkert verður af því vegna atviksins.Allir fullir og opinn bar á unglingaskemmtun „Stelpan lendir í því að vera kýld niður af drukknum einstakling. Mér skilst að hún hafi verið flutt með sjúkrabíl í bæinn. Þetta var ekki það sem maður var að kaupa miða á því maður ætlaði ekki að hleypa barninu sínu á útihátíð," segir móðir einnar vinkvenna stúlkunnar. Konan segir engar auglýstar forsendur hafa staðist og að hátíðin hafi alls ekki verið við hæfi barna. „Við sáum auglýsta áfengis- og vímuefnalausa skemmtun á sér síðu sem hét 8.-10. bekkur Keflavík Music Festival. Þetta átti samkvæmt síðunni að vera til kl. 23 á laugardagskvöldinu. Við vorum nokkrar mömmur sem ákváðum að leyfa börnunum okkur að fara saman, þetta eru allt krakkar úr fótboltanum. Tónleikarnir voru svo miklu lengur en auglýst var," segir konan. „Fyrri tvö kvöldin voru þau í tjaldi fyrir utan sem var frekar fámennt og aðallega unglingar þarna inni en svo á laugardagskvöldinu þá voru allir inni í Reykjaneshöllinni og allir fullir þarna inni og verið að drekka inni á staðnum líka. Síðan voru margir að bjóðast til að kaupa eitthvað á barnum fyrir stelpurnar. Ég veit um fleiri mæður sem eru mjög ósáttar. Við vorum ekki að kaupa miða á þessum forsendum. Ein mæðranna er algjörlega í sjokki og á erfitt með svefn út af þessu." Konan segir aðkomuna hafa verið skelfilega þegar farið var að sækja hópinn á laugardeginum: „Það var búið að auglýsa rútuferðir [úr Keflavík til Reykjavíkur innsk. blm.] fyrir krakkana en það stóðst ekki heldur. Þess vegna fór ein mamman að sækja krakkana og hún var algjörlega í sjokki þegar hún kom á staðinn. Það var drukkið fólk út um allt og þetta leit bara út eins og á Þjóðhátíð í Eyjum. Ég hefði aldrei sent barnið mitt þangað ef ég hefði vitað að þetta myndi vera svona.Yfirvöld kannast ekkert við unglingaballið „Ég er búin að tala við sýslumann og forvarnarfulltrúa og spyrja hvort þeir hafi veitt leyfi fyrir því að 14 ára krakkar væru þarna innan um fullt fólk og opinn bar og það bendir bara hver á annan. Það kannast enginn við að hafa veitt leyfi fyrir því og vissu heldur ekki af miðasölu fyrir þennan aldurshóp." Hér sést auglýsingin fyrir viðburðinn.
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Kærastinn var á staðnum Erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Sjá meira