Styrkja gott málefni Gunnar Leó Pálsson skrifar 31. mars 2014 14:00 Hér sjáum við hóp ekkna í Dindingul sem Vinir Indlands styrkja. Þegar þær missa makann þá eru þær eignalausar og við styrkjum þessa hópa, þær framfleyta sér með því að búa til kerti. Hér sést glitta í kertaform en kertin eru meðal annars hér á landi hjá Vinum Indlands. mynd/John Amalraj „
Indverska kvikmyndahátíðin er einn af þáttunum í okkar starfsemi til að kynna indverska menningu á Íslandi og ef ágóði verður af henni mun hann renna til styrktar munaðarleysingjaheimilum á Indlandi sem styrkt eru gegnum Vini Indlands,“ segir Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir, einn stjórnarmaður í Vinum Indlands en samtökin standa fyrir indverskri kvikmyndahátíð með stuðningi sendiráðs Indlands hér á landi. Hátíðin fer fram í Bíói Paradís dagana 8. apríl til 13. apríl. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin en hún fór fyrst fram fyrir tveimur árum, árið 2012, og vakti þá mikla athygli. Hún var samvinnuverkefni Vina Indlands, Bíós Paradísar og Sendiráðs Indlands á Íslandi. Auk þess veitti sendiráð Íslands í Nýju-Delí mikilvæga aðstoð við undirbúning hátíðarinnar.Sveinbjörg Rósa Sumarliðadóttir„Allur ágóðinn af hátíðinni rennur til heimila okkar í Indlandi. Við erum að styrkja þrjú heimili, eitt heimili fyrir munaðarlaus börn í borginni Erode í Suður-Indlandi, stúlknaheimili sem staðsett er í Pasum Kudil-héraði í Ramanatapuram og svo annað stúlknaheimili í Salem,“ segir Sveinbjörg Rósa. Að þessu sinni verða kynntar til leiks fimm nýlegar kvikmyndir. Allt eru þetta gæðamyndir og ætla þeir aðilar sem standa að kvikmyndahátíðinni að gera enn betur en síðast. Þær myndir sem sýndar verða á hátíðinni eru Enskunámið eða English Vinglish, Sköpuð fyrir hvort annað, Rómeó og Júlía, A Million Dollar Fake og Ra.One.
Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira