Sparidagar á Hótel Örk við lýði í aldarfjórðung Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. janúar 2015 13:30 „Dagskráin verður sambland af fræðslu, afþreyingu og skemmtun,“ segir Jakob sem hefur verið hótelstjóri á Örkinni í tíu ár. Mynd/Dakri Irene Husted „
Líklega er leitun að skemmtidagskrá á Íslandi sem hefur verið í boði jafn lengi,“ segir Jakob Arnarson, hótelstjóri á Hótel Örk í Hveragerði, um sparidaga hótelsins. Þeir eru haldnir fyrir eldri borgara og hafa verið fastur liður á hverjum vetri frá árinu 1990 þegar Jón Ragnarsson var þar hótelstjóri. Jakob segir ýmsa skemmtanastjóra hafa komið að sparidögum í gegnum tíðina og nefnir Helga Seljan, afa fréttamannsins, Hermann Ragnar Stefánsson, Sigurð Guðmundsson, Guðrúnu Nielsen, Árna Norðfjörð og Unni Arngrímsdóttur. „Undanfarin fimmtán ár hefur Gunnar Þorláksson danskennari séð um þessa daga, það er sá sami og er með Komið og dansið í Asparfellinu í Reykjavík. Dagarnir hafa verið dálítið tengdir dansinum í gegnum árin en áherslan á hann hefur samt aðeins minnkað. Við erum meira með þemakvöld núna, Bítlakvöld, kántríkvöld og önnur slík en það er alltaf dansað.“ Spurður hvort meira verði haft við í ár en endranær vegna afmælisins svarar Jakob: „Við bjóðum fólki í hestaleikhúsið í Fákaseli í Ölfusi og leggjum aðeins meira í dagskrána en við höfum gert.“ Hann nefnir sætaferð í Landgræðsluna í Gunnarsholti sem fólk hefur val um að fara í fyrir 1.600 krónur og að Siggi Sigurjóns ætli að leika hið kostulega leikrit Afann á Örkinni. Innifalið í verði er morgunverður og þriggja rétta kvöldmáltíð og skemmtileg kvölddagskrá verður á sínum stað að sögn Jakobs. „Níels Árni Lund sér um stjórnina á sparidögum núna og verður með Hauk Ingibergsson tónlistarmann og marga aðra góða gesti sér til halds og trausts. Jóhannes Kristjánsson eftirherma kemur eitt kvöldið, Guðríður Helgadóttir verður með fróðleik um garðrækt einn daginn og fleiri gestafyrirlesarar koma. Dagskráin verður sambland af fræðslu, afþreyingu og skemmtun.“
Mest lesið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Nicole er fyrir norðan Lífið Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn Lífið Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sunneva Einars áfram langtekjuhæsti áhrifavaldurinn „Ógleymanlegt söngævintýri“ með Nicole Kidman Prjóna á klúbbnum án þess að prjóna yfir sig Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Sjá meira