Ráðherraskipan eigi að endurspegla þingstyrk Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 31. desember 2016 07:00
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, er hóflega bjartsýnn á að myndun ríkisstjórnar með Sjálfstæðisflokki og Bjartri framtíð takist í þetta skiptið. Áður höfðu viðræður farið út um þúfur. „Maður reynir þó að vera raunsær líka. Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið,“ segir Benedikt. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk í gær formlegt umboð til ríkisstjórnarmyndunar og taka nú formlegar stjórnarmyndunarviðræður Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar við. Á blaðamannafundi á Bessastöðum sagði Bjarni gert ráð fyrir því að hann yrði forsætisráðherra ríkisstjórnarinnar ef myndun hennar tækist. Þá sagði Bjarni viðræðurnar komnar lengra en síðast er flokkarnir áttu í formlegum viðræðum. Einnig væru viðræður um sjávarútvegs- og Evrópumál langt komnar.„Ég held við getum náð ásættanlegri lendingu í þeim málum. Við erum enn að vinna að þessu en erum búin að tala okkur í gegnum það sem helst hefur strandað á til þessa. Við teljum að þar sé kannski komin sú lending sem dugir,“ segir Benedikt sem kveður betur ganga núna vegna aukins samstarfsvilja. „Svo er þetta búið að ganga í tvo mánuði eins og allir vita og menn eru kannski búnir að sjá að aðrir kostir virðast ekki ganga upp.“ Benedikt kveðst sáttur við að Bjarni verði forsætisráðherra. Annað hafi ekki komið til tals að þessu sinni. Varðandi önnur ráðherraembætti segir Benedikt að sú umræða sé stutt á veg komin. Engin ákvörðun liggi fyrir um að fjölga eða fækka ráðherraembættum. „Við höfum rætt skipan stjórnarráðsins almennt en ekki tekið neina ákvörðun í því. Það hafa verið gerðar breytingar á undanförnum árum og við höfum velt því fyrir okkur hvernig þetta sé haganlegast gert.“ Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins er mun stærri en hinna flokkanna, með 21 þingmann. Viðreisn er með sjö þingmenn og Björt framtíð fjóra. „Ég reikna með því að stærð flokkanna muni nú eitthvað endurspeglast í fjölda ráðherra en kannski ekki að öllu leyti,“ segir Benedikt.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira