Í fíkniefnaviðskiptum með fimm mánaða barn í bílnum sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 31. desember 2016 08:45 Erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en allt komu 55 mál inn á borð þeirra. Vísir/Vilhelm
Karlmaður og kona voru handtekin rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi eftir að upp komst um fíkniefnaviðskipti þeirra á milli á bílastæði í austurborginni. Konan, sem er tvítug, var með fimm mánaða gamalt barn sitt í bílnum og var barnaverndarfulltrúi boðaður á lögreglustöðina, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu. Þá óskaði erlendur ferðamaður eftir aðstoð lögreglu upp úr miðnætti en hann hafði leigt herbergi í miðborginni en þurft að flýja út vegna ölvunarástands leigusalans. Ferðamaðurinn hafði skilið ferðatöskuna sína eftir í íbúðinni og þurfti aðstoð við að nálgast hana aftur. Lögreglumenn sóttu töskuna og óku ferðamanninum á næsta hótel. Kona á fertugsaldri var handtekin grunuð um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Hún hafði ekið í gegnum stóra rúðu í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði, og talið er að konan hafi gert það viljandi. Konan var vistuð í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hana vegna málsins. Tveir karlmenn voru handteknir í Hlíðahverfi laust eftir klukkan átta í gærkvöldi eftir að öryggisverðir úr Kringlunni höfðu veitt þeim eftirför og handsamað þá eftir að þeir voru staðnir að þjófnaði úr verslun. Mennirnir viðurkenndu brot sín og var sleppt eftir skýrslutöku. Þá segir í skeyti frá lögreglu að ökumaður hafi verið stöðvaður á Reykjanesbraut í Kópavogi vegna þess að hún var með röng skráningarmerki. Í ljós kom að bíllinn var ótryggður og ökumaðurinn undir áhrifum fíkniefna. Við leit í bílnum fundust fíkniefni og munir sem maðurinn gat ekki gefið skýringar á, en nokkrir munanna voru merktir fyrirtæki sem brotist var inn í nýverið. Maðurinn gistir í fangageymslu.
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Fleiri fréttir „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Sjá meira