Fimmtíu listamenn sameinast fyrir hjartveika stúlku Hugrún Halldórsdóttir skrifar 9. ágúst 2012 18:36 Matthildur Haraldsdóttir í faðmi foreldra sinna.
Tónleikar til styrktar tveggja ára stúlku sem hefur þurft að gangast undir margar erfiðar hjartaaðgerðir, verða í Dómkirkjunni í kvöld. Yfir fimmtíu listamenn sameina þar krafta sína og eru flestir vinir litlu hetjunnar. Ljóti kór er á meðal þeirra sem koma fram í kvöld en söngvararnir þekkja margir til Matthildar Haraldsdóttur, sem fæddist með afar sjaldgæfan og flókinn hjartagalla. Mikið hefur verið lagt á þessa litlu stúlku sem gekkst nú síðast undir aðgerðir á sjúkrahúsi í Munchen í júlí og ágúst. „Matthildur er búin að vera í rúman mánuð á spítalanum núna. Þetta er búið að vera hörð barátta en síðastliðna daga hefur henni farið fram, það hafa verið hæg framfaraskref svo við erum náttúrulega jákvæð og vonum það besta," segir Guðbjörg Sandholt, fjölskylduvinur í Salzburg. Ljóst er að bataferlið getur tekið langan tíma og fyrirséð að foreldrar Matthildar, tónlistarfólkið Harpa Þorvaldsdóttir og Haraldur Ægir Guðmundsson verði fjarverandi frá vinnu í dágóðan tíma. Vinir fjölskyldunnar ákváðu vegna þessa að efna til tónleika til þess að styðja við bakið á ungu fjölskyldunni sem búsett í Salzburg. „Matthildur er lítil ofurstelpa, hún smitar alla með krafti sínum, gleði og orku þannig að maður heillast af. Þeir sem kynnast henni, sem eru ekki mjög margir Íslendingar því þau hafa ekki komist heim með hana, en við sem höfum verið úti verðum fljótt og vel ástfangin af henni þannig að styðja þetta barn gerum við með glöðu geði," segir Elfa Lilja Gísladóttir, fjölskylduvinur. Tónleikarnir verða í Dómkirkjunni og hefjast klukkan átta. „Aðgangseyrir, hann var svolítið mikið í umræðunni. Við erum að miða við 2000 kr en við viljum frekar að fólk komi, það er aðalatriðið. Hvort að það er ekkert eða minna eða meira, það er alveg frjálst," segir Elfa Elfa hvetur sem flesta til að koma enda væn og lifandi tónlistarveisla í vændum. Þeir sem ekki komast á tónleikana í kvöld en vilja styrkja Matthildi og fjölskyldu er bent á reikningsnúmerið 0159-05-403600 Kt. 160580-5429.
Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Sjá meira