Frostrósafélög í milljónaskuld 9. október 2013 07:00 Samúel segir að skuldir móðurfélagsins, Frost Culture Company, séu að megninu til við sjálft dótturfélagið vegna útrásar Frostrósa.
Fyrirtækið Frost Culture Company og dótturfélag þess Frostroses Entertainment, sem stendur að Frostrósartónleikaröðinni, skulda samanlagt rúmlega 300 milljónir króna samkvæmt ársreikningi. Ekki hefur verið gert upp við tvo kóra sem sungu á Frostrósartónleikunum í fyrra. Skuldir móðurfélagsins eru að mestu leyti við dótturfélagið vegna útrásar, segir framkvæmdastjóri félaganna. Frostroses Entertainment, sem stendur að tónleikaröðinni Frostrósir, hagnaðist um 42 miljónir króna árið 2011 en skuldir þess námu á sama tíma um 55 milljónum króna. Móðurfélag Frostroses Entertainment, Frost Culture Company, skuldaði á sama tíma 260 milljónir króna, þar af voru skammtímaskuldir um 170 milljónir króna. Að sögn Samúels Kristjánssonar, framkvæmdastjóra félaganna, sýnir ársreikningur Frostroses Entertainment stöðu félagsins um áramótin 2011-2012. Þá hafi verið eftir að innheimta og gera upp stóran hluta reikninga. Nú sé staðan allt önnur og reksturinn í jafnvægi. Samúel segir að skuldir móðurfélagsins, Frost Culture Company, séu að megninu til við sjálft dótturfélagið vegna útrásar Frostrósa. Í tölvupósti frá endurskoðanda fyrirtækjanna, sem Samúel sendi Vísi, segir að Frostroses sé dótturfélag Frost Culture en þar sem það félag sé alfarið í eigu Samúels hafi ekki verið gerður samstæðureikningur. Því þurfi að skoða ársreikninga félaganna saman. Í tölvupóstinum kemur fram að að móðurfélagið skuldi dótturfélaginu rúmar 150 milljónir króna og sú skuld sé megin uppistaðan í neikvæðri stöðu félagsins. Samkvæmt þessu skuldar móðurfélagið, Frostroses Culture Company, því öðrum aðilum um 110 milljónir króna. Samúel segir að séu ársreikningarnir 2011 lagðir saman séu heildarskuldir fyrirtækjanna umfram útistandandi kröfur um það bil 14,5 milljónir króna. Ársreikningar fyrir árið 2012 hafa ekki verið birtir.Ekki gert upp við tvo kóra Samúel á enn eftir að gera upp við tvo kóra sem tóku þátt í Frostrósum í fyrra. „Hann skuldar okkur ennþá peninga en ég ætla ekki að segja hvað það er mikið,“ segir Agla Ástbjörnsdóttir, formaður söngsveitarinnar Fílharmóníu. „Hann ætlar sér að standa skil á þessu þannig að við verðum mjög glöð í lok mánaðarins þegar þetta verður gert upp.“ Söngsveitin Fílharmónía útvegaði um 200 manna kór fyrir tónleika Frostrósa í Hörpu í fyrra sem og hluta kórs sem söng á tónleikunum á Akureyri. „Við erum búin að bíða eftir greiðslunni frá því fyrir síðustu jól,“ segir Agla sem er bjartsýn á að fá peningana. „Maður verður að vera bjartsýnn." Að sögn Samúels skuldar félagið kórunum innan við eina milljón króna. Hann segir að þetta sé í fyrsta skipti sem fyrirtækið lendi í því að ná ekki að gera upp við alla sem að tónleikunum koma. Hann hafi átt fund með forsvarsmönnum kóranna í fyrradag og ætli að gera upp við þá á næstunni. „Ég hef aldrei skilið neitt eftir. Við létum það ganga fyrir að gera upp við einstaklinga og eigum eftir að klára að gera upp við tvo kóra sem verður klárað á næstu dögum. Þá verður rekstur okkar kominn í jafnvægi,“ segir Samúel. „Við höfum rekið þetta á sömu kennitölunni í öll þessi ár. Það er gífurlega áhætta fyrir hver jól en við höfum ekki lent í svona erfiðleikum áður.“Stefnir á útrás Eins og fram kom í Fréttablaðinu í vikunni verða lokatónleikar Frostrósa hér á landi í Laugardalshöllinni í desember en Samúel vinnur samhliða því koma á Frostrósartónleikum í Noregi og Svíþjóð. Útrásin skýri því að mörgu leyti skuldir móðurfélagsins. „Við erum búin að eyða tugum milljóna í verkefnið úti og túrinn mun velta vel yfir milljarði,“ segir hann. Útrás Frostrósa átti að hefjast í fyrra en að sögn Samúels var ákveðið að seinka henni til ársins 2015. Hann vinnur nú að því að stofna félög um reksturinn í Svíþjóð og Noregi. Spurður hvort reksturinn eigi eftir að ganga miðað við skuldir móðurfélagsins segir Samúel: „Það veltur á því hvernig verkefnið tekst úti. Við erum búin að leggja mikið í þessa fjárfestingu og heildarskuld félagsins nemur ekki nema 7-8% af áætlaðri veltu.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira